Þetta segir Jón Þór Víglundsson, upplýsingafulltrúi hjá Slysavarnafélaginu Landsbjörg í samtali við fréttastofu. Fyrstu viðbrögð hafi verið að senda eins mikinn mannskap á svæðið og kostur var. Gengu björgunarsveitarmenn svo meðfram ánni frá brúnni við Klaustursel og flugu myndavéladrónum yfir svæðið.
Sérstaklega var hugað að leit frá Stuðlagili þar sem síðast sást til mannsins. Þyrla Landhelgisgæslunnar kom á svæðið upp úr klukkan hálf fjögur með straumvatnsbjörgunarmenn frá Reykjavík og flaug meðfram ánni, að sögn Jóns. Leit heldur nú áfram.
Stuðlagil hefur verið vinsæll viðkomustaður ferðamanna á Austurlandi undanfarin ár. Erlend ferðakona á fertugsaldri lést þegar hún féll í ána í október árið 2024. Þremur og hálfu ári áður komu nærstaddir konu sem féll í klettum við gilið til bjargar.
Fréttin er í vinnslu.