Eiginmaður leikkonunnar Millie Bobby Brown hefur verið harðlega gagnrýndur undanfarið. Gagnrýnin á rætur að rekja til mynda sem hafa birst af hjónunum sem netverjar telja sanna að eiginmaðurinn, Jake Bongiovi, sé ekki að standa sig sem maki og faðir. Á myndunum umdeildu heldur leikkonan á barni sem þau hjónin ættleiddu, bílstól, töskum og öðru slíku. Bongiovi er jafnan tómhentur. Leikkonan, sem sló í gegn í þáttunum Strangers Things, veltir fyrir sér hvert samfélagið er komið. Í hlaðvarpinu Not Gonna Lie í síðustu viku kom leikkonan manni sínum til varna.
Leikkonan kemur eiginmanni sínum til varna eftir harða gagnrýni - „Hvenær urðu konur ófærar um að halda á töskunum sínum?“