Leikkonan Kate Beckingsale opnaði sig um áfallastreituröskun sem hún glímir við í myndbandi sem hún birti á samfélagsmiðlum. Hún hvetur fólk til að sýna mildi þar sem slíkar raskanir séu ósýnilegar öðrum en þeim sem við þær glíma.„Það eru menn, konur og börn þarna úti sem hafa séð eða upplifað svo skelfilega hluti að taugakerfi þeirra hefur breyst til frambúðar. Og margt þetta fólk verður ótrúlega lunkið við að fela þetta. Og það er sorglegt, því þau verða svo góð í feluleiknum að þeim er engin miskunn sýnd.“
Leikkonan getur ekki borðað vegna áfallastreitu og sorgar - Biður fólk að sýna mildi