Levine var þekktust fyrir hlutverk sín í þáttunum Gilmore Girls og kvikmyndinni La La Land frá árinu 2016 með Emmu Stone og Ryan Gosling í aðalhlutverkum.
Levine fæddist 22. desember 1928 í East Orange í New Jersey. Hún starfaði sem bókasafnsvörður og kennari í New Jersey í um tuttugu og fimm ár áður en að hún hóf feril sinn í Hollywood. Eftir andlát eiginmans síns, árið 2003, flutti hún til Los Angeles og uppfyllti æskudraum sinn um að starfa við leiklist, þá 74 ára gömul.
Í þáttunum Gilmore Girls, um mægðurnar Lorelai og Rory, fór Levine með hlutverk Frú Thompson. Einnig kom hún fram í hinum ýmsu þáttum á borð við Everybody loves Raymond, New Girl, 2 Broke Girls og Law & Order. Hennar síðasta kvikmyndahlutverk var í kvikmyndinni The Cure sem kom út fyrr á þessu ári.