Glænýtt bæjarráð á Akureyri lagði til, á öðrum fundi sínum í gær, að kjörnir fulltrúar og bæjarstjóri fái ekki vísitöluhækkun launa sem koma á til framkvæmda 1. júlí.
„Stærsta hagsmunamál heimila og fyrirtækja eru verðbólga og vextir. Við erum að leggja okkar af mörkum með þessum hætti, að frysta laun, og það eru blikur á lofti í efnahagsmálunum, kjarasamningar í haust. Þetta er okkar aðgerð til að sýna samstöðu í þessum efnum því sveitarstjórnir geta lagt sitt af mörkum í baráttu við verðbólgu og vexti,“ segir Berglind Ósk Guðmundsdóttir bæjarstjóri á Akureyri.
Málið hefur ekki verið afgreitt úr bæjarráði. Berglind á von á að það verði samþykkt og um það verði breið sátt.
„Ég held að við getum alveg náð góðri sátt. Ég held að við séum þokkalega sammála um að það er hlutverk sveitarfélaganna að stíga inn í þegar efnahagsástandið er eins og það er. Þetta er bara einn liður í því af mörgum aðgerðum sem við getum tekið til.“
Laun kjörinna fulltrúa í bæjarstjórn á Akureyri eru 462.523 krónur á mánuði og hjá þeim sem sitja í bæjarráði bætast 462.523 krónur ofan á það. Greitt er aukalega fyrir setu í öðrum nefndum og sérstaklega er greitt fyrir nefndarformennsku.
„Við ætlum hins vegar alveg að frysta launin hér. Við teljum það líka bara táknrænt að við ætlum ekki að þiggja neina hækkun á þessu tímabili. Svo verðum við bara að sjá með framhaldið, hvort við ætlum að gera eitthvað meira,“ segir Berglind Ósk.