Lögreglan á Norðurlandi eystra handtók fimm á Akureyri síðdegis. Lögreglu barst tilkynning um grun um vopnaburð og voru tveir bílar stöðvaðir. Skotvopn fundust í þeim báðum.
Vísir greindi nú í kvöld frá því að meint vopn hefðu verið leikfangabyssur. Heimildir Vísis herma að leikfangabyssurnar hafi verið keyptar í Kids Coolshop á Glerártorgi fyrr um daginn.
Varðstjóri Lögreglunnar á Norðurlandi eystra staðfestir að fimmmenningarnir hafi verið fluttir á lögreglustöð og teknir til yfirheyrslu en þeir voru látnir lausir að lokinni skýrslutöku í kvöld. Hann segir málið í rannsókn og að lögreglan geti ekki tjáð sig nánar um vopnin að sinni. Varðstjóri vildi ekki tjá sig um aldur hinna handteknu.
Varðstjóri lögreglunnar segir að lögreglan á Norðurlandi eystra muni senda frá sér fréttatilkynningu um verkefni næturinnar síðar.
Kolbrún Björg Jónsdóttir, aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á Norðurlandi eystra, sagði í samtali við fréttastofu að lögreglu hefði borist tilkynning um mann sem otað hefði skotvopni að öðrum.
Kolbrún sagði að lagt hefði verið hald á tvenns lags skotvopn en að lögregla veitti ekki frekari upplýsingar að svo stöddu. Engin meiðsli urðu á fólki.