Viggó Kristjánsson landsliðsmaður Íslands í handbolta hefur kallað eftir því að Donald Trump forseti Bandaríkjanna bjóði Íslandi samning um að verða hluti af ríki sínu.Viggó var í landsliðshópnum á síðasta stórmóti, Evrópukeppninni í janúar síðastliðnum.Hann skrifar færslu á X á ensku og merkir X-reikning Trump í færslunni. Landsliðsmaðurinn skrifar ( í þýðingu DV): „Þar sem Ísland er að hugleiða að ganga í Evrópusambandið þá viljum við líka skoða að verða 51. ríki Bandaríkjanna. Gætum við fengið að sjá drög að aðildarsamningi? Áfram Ísland.“
Landsliðsmaður í handbolta kallar eftir samningi um inngöngu Íslands í Bandaríkin