Björgunarsveitarfólk úr Björgunarsveitinni Suðurnes og Björgunarsveit Hafnarfjarðar sigu eftir lambi sem var í sjálfheldu í Krýsuvíkurbjargi í kvöld.
Vísir greindi fyrst frá lambinu eftir að Teitur Þorkelsson leiðsögumaður vakti athygli á því að lamb væri í sjálfheldu í bjarginu í fyrr í dag. Björgunarsveitirnar fóru að Krýsuvík í kvöld til að skoða aðstæður og meta hvort hægt væri að bjarga lambinu.
Marteinn Þórdísarson, formaður Björgunarsveitarinnar Suðurnes, segir að björgunarstarfið hafi gengið vel. „Þetta gekk vel í samstarfi við Björgunarsveit Hafnarfjarðar. Við nýttum tækifærið til að taka góða æfingu,“ segir Marteinn.
Björgunarsveitarfólk seig svo niður eftir lambinu sem var á lítilli sillu, og náðu að tryggja lambið og hífa það upp á bjargbrúnina. Þar sem því var sleppt.
„Það var eflaust eitthvað skelkað, en þau komu því upp og það er fyrir öllu,“ sagði Marteinn.