Helga Rósa Másdóttir, formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga, segir mjög alvarlegt að hlutfall hjúkrunarfræðinga á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Hraunbúðum í Vestmannaeyjum sé langt undir viðmiðum til að tryggja öryggi.
Embætti landlæknis gerði alvarlegar athugasemdir við aðbúnað á heimilinu í skýrslu sem unnin var eftir tilkynningu um alvarlegt atvik fyrr á árinu. Þar voru meðal annars gerðar athugasemdir við mönnun.
Hlutfall hjúkrunarfræðinga á Hraunbúðum er 12% en lágmarkshlutfall til að tryggja öryggi íbúa er 20%.
„Það er auðvitað vel þekkt og vel rannsakað að rétt mönnun hjúkrunarfræðinga eykur öryggi þeirra sem þurfa á heilbrigðisþjónustu að halda. Þetta er mjög dapurleg frétt að heyra en kemur því miður ekki á óvart,“ segir Helga Rósa.
Gagnrýnir að skuldinni sé skellt á starfsmenn, ekki stofnunina
Þegar svo lágt hlutfall hjúkrunarfræðinga sé við störf á stofnun segir hún að líkur geti aukist á því að óvænt eða alvarleg atvik verði.
Starfsmaður Hraunbúða tilkynnti andlát konu á tíræðisaldri á Hraunbúðum til lögreglu í janúar. Tveir starfsmenn höfðu réttarstöðu sakbornings en lögregla hætti rannsókn á dögunum, eftir að endanleg krufningarskýrsla barst.
Helga Rósa segir mikinn létti að rannsókninni hafi verið hætt. Hún er jafnframt gagnrýnin á að sökinni sé skellt á starfsmenn þegar atvik koma upp.
„Ef það koma upp óvænt atvik og það er alveg ljóst að hlutirnir eru ekki í lagi,“ segir Helga Rósa og tekur þar ótryggt starfsöryggi vegna lágrar mönnunar, lélegs tækjabúnaðar eða húsnæðis sem dæmi. „Að þá séu starfsmennirnir dregnir til saka en ekki stofnunin,“ segir hún.