Starfsmaður á hjúkrunar- og dvalarheimilinu Hraunbúðum í Vestmannaeyjum var handtekinn eftir að samstarfsmaður lýsti yfir grunsemdum um að hann hefði af ásetningi gefið konu of stóran skammt af morfíni með þeim afleiðingum að hún lést.
Þetta kemur fram í gæsluvarðhaldsúrskurði frá því í febrúar sem birtist nýlega á vef Landsréttar. Þar var ósk lögreglustjórans á Suðurlandi um gæsluvarðhald yfir starfsmanninum hafnað.
Tveir starfsmenn voru handteknir í febrúar vegna andláts konu á tíræðisaldri á Hraunbúðum en rannsókn var hætt eftir að endanlegar niðurstöður bárust úr krufningarskýrslu.
Engin læknisfræðileg gögn
Landsréttur byggði úrskurð sinn á því að engin læknisfræðileg gögn bentu til þess að andlátið hefði borið að með grunsamlegum hætti. Það eina sem varpaði sök á starfsmanninn væri framburður samstarfsmanns um að hann hefði opnað lyfjadælu og sprautað umtalsverðu magni af morfíni í hana.
„Vitnið segist hafa spurt hvort þetta mætti en starfsmaðurinn hafi svarað „nei, en ég geri þetta mjög oft,“ segir í úrskurðinum.
Var í lífslokameðferð
Hinn starfsmaðurinn sem var handtekinn var sagður hafa sagt við samstarfsmann sinn að hafa ekki meira en 18 millilítra í sprautunni við dælinguna.
Konan sem lést var í lífslokameðferð eftir að hafa fengið blóðtappa og var meðal annars gefið morfín í gegnum lyfjadælu.
Annað vitni sem annaðist hana daginn sem hún lést greindi frá því að sér hefði ekki fundist andlátið hafa borið að með óeðlilegum hætti.