Þetta er meðal þess sem kemur fram í yfirliti lögreglu yfir verkefni næturinnar.
Viðbragðsaðilum barst einnig tilkynning um eld í bifreið. Eldsupptök eru óljós en talið er að hann hafi kviknað vegna bilunnar. Málið er í rannsókn. Þá barst tilkynning um gasleka í fjölbýlishúsi en lyktin fannst í kyndiklefa. Slökkvilið og sjúkraflutningamenn voru boðaðir á vettvang og gripið til „bráðabirgðaráðstafana“.
Nokkrir ökumenn voru stöðvaðir í umferðinni, meðal annars fyrir akstur undir áhrifum. Þá voru að minnsta kosti fjórir grunaðir um akstur án ökuréttinda.
Lögreglu barst einnig tilkynning um árekstur og afstungu og er það mál í rannsókn.