Þetta var lokasýning listræna stjórnandans Glenn Martens sem fór alla leið í frumlegheitum en þetta verður líklega umtalaðasta sýning þessa tímabils. Var um að ræða eins konar nautnaóð í bókstaflegri merkingu.
„Partíið er alltaf í fyrirrúmi hjá Diesel. Það snýst um inngildingu, sjálfstjáningu, ánægju og lýðræði upplifunarinnar. Línan er kjarni Diesel: truflandi, kynþokkafull, flæðandi, skemmtileg. Við erum öll í þessu saman: förum í einn rúnt í viðbót,“ var haft eftir Martens í fréttatilkynningu.
Flíkurnar vöktu mikla lukku hjá viðstöddum og rétt áður en síðasta fyrirsætan gekk á svið byrjuðu leikararnir í salnum að láta ljós sitt skína og tískusýningin breyttist í létt tískukynsvall.