Landris við Svartsengi heldur áfram með stöðugum hraða og meðalhraði kvikusöfnunar undanfarnar vikur hefur haldist stöðugur.
Áframhaldandi hæg kvikusöfnun sem endar með nýju kvikuhlaupi og jafnvel eldgosi er áfram líklegasta sviðsmyndin.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Veðurstofu Íslands. Hættumat helst óbreytt og hefur gildistími þess verið framlengdur til 30. september.
„Jarðskjálftavirkni á Sundhnúksgígaröðinni og nærri Grindavík er einnig áfram frekar lítil og með svipuðu móti og áður. Engin marktæk breyting hefur orðið á jarðskjálftavirkni síðustu vikurnar,” segir jafnframt í tilkynningunni.
Goshléið á Sundhnúkagígaröðinni er orðið það langlengsta frá því hrina eldgosa hófst þar í desember 2023 en síðasta eldgosi, því níunda í röðinni á svæðinu, lauk 5. ágúst í fyrra.