Áhöfn björgunarskipsins Húnabjargar kom skipstjóra á trillu til bjargar eftir að eldur kviknaði í vélarrúmi bátsins.
Skipstjórinn óskaði eftir aðstoð um klukkan fjögur í nótt. Þá var hann búinn að slökka eldinn en vélin var eðli málsins samkvæmt ónothæf.
Húnabjörg var því boðuð út á næst hæsta forgangi. Hún lagði úr höfn á Skagaströnd rétt upp úr hálf fimm og var komin að bátnum upp úr klukkan fimm. Taug var komið í bátinn og hann tekinn í tog. Húnabjörgin og trillan komu í höfn um klukkan sex í morgun.