Töluverður viðbúnaður var í Elliðaárdalnum. Þrír eða fjórir slökkviliðsbílar og lögregla voru á vettvangi, að sögn fréttamanns á svæðinu. Inni í húsinu kviknaði í raftæki og hefði geta farið mun verr, að sögn varðstjóra.
Búið sé að slökkva eldinn og vel hefði gengið að ráða niðurlögum eldsins. Aðeins hafi tekið nokkrar mínútur að slökkva eldinn.
Þó var mikill eldsmatur, reykurinn sé talinn hættulegur og asbest sé í húsinu. Slökkvilið er enn á svæðinu að reykræsta.