Kryfja morð sem framin voru í hrikalegri náttúru
Gísli Már Gíslason, líffræðingur og leiðsögumaður, mun leiðsegja dagsferð að Sjöundá sem verður farin upp úr verslunarmannahelgi. Með í för verða hæstaréttardómarar sem varpa ljósi á eitt helsta morðmál Íslandsögunnar sem átti sér þar stað.
Sakamál á Sjöundá, Skor og Stálfjall
Sjöundá er innsti bærinn á Rauðasandi í Vestur-Barðastrandarsýslu á Vestfjörðum. Ferðinni er skipt í þrennt, en allir hópar fara að Sjöundá. Síðan er möguleiki að ganga aftur til baka að bílastæðinu, en hinir hóparnir tveir fara gangandi inn í Skor eða niður Stálfjallið í kolanámurnar sem þar eru frá fyrri heimsstyrjöld.
Fjölbreytt og tilkomumikil náttúra
„Það er geysilega fallegt á þessu svæði fyrir vestan. Bara að koma á Bjargtanga, sem er vestasti tangi landsins og ysti oddi Látrabjargs, og ganga upp að Ritugjá, sem er ekki nema 300 metra ganga frá vitanum á Bjargtöngum og hækkun um 60 metra, þá sér maður allar fuglategundir í Látrabjargi í einni gjá. Þarna getur fólk horft inn eftir bjarginu, alveg inn að Barða, brík sem stendur út úr bjarginu. Ég hef verið að leiðsegja svolítið fyrir vestan fyrir erlenda skipafarþega og farið með þá út á Látrabjarg …