Falleg skógarbelti, lyngmóar og melar í kringum Breiðholtið eru skemmtileg leiksvæði. Sömuleiðis Elliðaárdalurinn fyrir ofan stíflu. Fuglalíf þar er fjölbreytt. Suma fugla ber oft fyrir augu eins og stokkönd, hettumáf og grágæs.
Aðrir fuglar eru ekki eins sýnilegir og mikil fyrirhöfn er að koma auga á þá. Eyruglur eru í þeim hópi.
Ásta Magnúsdóttir áhugaljósmyndari hefur haft sérlegan áhuga á uglum í meira en áratug og leitar þær víða uppi. Hún hafði frétt af ugluhreiðri og hóf leit. Heppnin var með henni 17. júlí þegar hún náði myndbandi af eyrugluunga á grein.
Unginn virtist forvitinn mjög og með, að því er virtist, alveg liðamótalausan háls.
Eyrugluunginn á þrjú systkini og komu þau öll úr eggjum sínum fyrr í sumar eða vor í skóginum milli Elliðaáa og Hólahverfis.
Eyruglur hafa orpið á Íslandi að minnsta kosti frá 2003 en varppörin eru fá staðfest eða rúmlega 20 síðan 2022. Hún er friðuð. Eyrugla er lík branduglu en augun eru appelsínugul en ekki gul eins og í branduglu. Hún er auðgreid á löngum fjaðraeyrum, segir á vef Náttúruminjasafns Íslands, sem sjást aðeins þegar fuglinn situr.
Nú hafa Breiðholtsungarnir flutt sig í aðeins meiri rólegheit fjarri mannfólkinu. Heimilisfangið verður ekki gefið upp.