„Ég get fullyrt það að við munum virða niðurstöðuna hver sem hún er. Ef það verður já þá förum við í samningaviðræður og ef við náum ásættanlegum samning þá verður hann lagður aftur fyrir þjóðina og fólk mun fá að segja sem það þarf að segja í lokin um þetta mál. Ef það er nei þá er fólk búið að gefa skýr skilaboð. Þannig að fólk getur ekki annars vegar sagt; af hverju að setja þetta á dagskrá? Það vill enginn þetta. En síðan verið á móti því að fólk sé bara einfaldlega spurt.“
Kristrún: „Einhvers staðar verðum við að draga línuna“