Kristinn Hrafnsson, fjölmiðlamaður og ritstjóri Wikileaks, lét gervigreindina greina 5.700 athugasemdir sem skrifaðar voru undir þætti Piers Morgan þar sem hinn íslenski Samúel Guðmundsson mætti hinum umdeilda Rabbi Shmuley.Viðtalið vakti gríðarlega athygli og hrósuðu margir Samúel fyrir þá stóísku ró sem hann sýndi í viðtalinu og ekki síður málefnaleg svör.Í færslu á Facebook-síðu sinni segir Kristinn að niðurstaða greiningarinnar hafi verið afgerandi. Þannig hafi 91% stutt Samúel með skýrum hætti.
Kristinn lét gervigreindina greina þúsundir ummæla um Samúel – Niðurstöðurnar athyglisverðar