Kaupahéðnar og áhrifamenn eru sagðir hafa getað fengið greiðan aðgang að Kristersson með því að bjóða sig fram til sjálfboðaliðastarfa fyrir Fållökna-sjóðinn, samtök á vegum Birgittu Ed, eiginkonu forsætisráðherrans.
Dæmi eru sögð um að fyrrum sjálfboðaliðar hafi í kjölfarið verið skipaðir í áhrifastöður í ríkisstjórn Kristersson. Þá er losarabragur sagður á öryggismálum. Þannig þurfti blaðamaður Aftonbladet aðeins að lýsa yfir áhuga sínum á að vinna fyrir sjóðinn til þess að komast í návígi við Kristersson sjálfan.
Í síðasta mánuði töldu sænskir stjórnsýslufræðingar svo Kristersson hefði átt í skýrum hagsmunaárekstri þegar stóraukin framlög til samtaka mágkonu hans voru samþykkt.
Ríkisstjórn Kristersson samþykkti að nærri því tvöfalda framlag til Teach for Sweden, félagasamtaka sem mennta kennara, á fundi sem forsætisráðherrann sat í apríl, að sögn sænskra fjölmiðla.
Marita Bildt, systir Birgittu Ed, hefur setið í stjórn Teach for Sweden frá 2021. Síðan þá hafa ríkisframlög til samtakanna rúmlega tvöfaldast.
Ekki persónulega inn í hverju smáatriði
Teach for Sweden hafði þegar verið eyrnamerktar fimmtán milljónir sænskra króna en í fjáraukalögum sem ríkisstjórnin samþykkti voru tólf milljónum bætt við. Í heildina fengu samtökin því jafnvirði rúmra 357 milljóna íslenskra króna frá ríkisstjórn Kristersson.
Talskona Kristersson sagði framlög til samtakanna hafa farið í gegnum hefðbundið ferli við fjárlagagerð. Forsætisráðherrann hefði ekki verið persónulega inn í fjárlagagerðinni í svo miklum smáatriðum.
Olle Lundin, prófessor í stjórnsýslulögum, sagði við sænska ríkisútvarpið að hann teldi þetta nokkuð skýran hagsmunaárekstur hjá forsætisráðherranum.
„Mitt mat er að hann sé vanhæfur. Hann hefði ekki átt að vera á þessum fundi,“ sagði Lundin.
Bagalegt um þremur mánuðum fyrir kosningar
Bæði mál eru þau bagalegustu fyrir Kristersson enda aðeins rúmir þrír mánuðir til þingkosninga. Moderata-flokkur hans hefur mælst með tæplega fimmtungsfylgi í skoðanakönnunum, nokkru minni en jaðarhægriflokkurinn Svíþjóðardemókratar.
Svíþjóðardemókratar hafa stutt minnihlutastjórn Kristersson. Hann boðaði fyrr á þessu ári að hann tæki þá með sér í ríkisstjórn ef hann fengi til þess umboð í þingkosningunum í haust.
Jafnaðarmenn mælast með mest fylgi í könnunum, í kringum þriðjung.