Sjúkraliðafélag Íslands lýsir yfir skýrum stuðningi við starfsmann á hjúkrunarheimilinu Hraunbúðum í Vestmannaeyjum sem var handtekinn vegna andláts konu á tíræðisaldri á hjúkrunarheimilinu.
Í febrúar fengu tveir starfsmenn Hraunbúða réttarstöðu sakbornings eftir að andlát konu á tíræðisaldri var tilkynnt til lögreglu. Rannsókn á málinu var hætt fyrr í vikunni vegna þess að ekki var talinn grundvöllur til að halda henni áfram.
„Málið er afar alvarlegt. Félagsmaður okkar var sviptur frelsi, fékk réttarstöðu sakbornings og bjó um tíma við grun um aðild að einu alvarlegasta broti sem einstaklingur getur verið sakaður um. Slík reynsla getur haft djúpstæð áhrif á heilsu, fjölskyldulíf, starfsferil og mannorð, þótt rannsókn sé síðar hætt,“ segir í yfirlýsingu Sjúkraliðafélagsins.
„Alvarleg atvik í heilbrigðisþjónustu verður að rannsaka af festu, fagmennsku, nærgætni og óhlutdrægni.“ Rannsóknir verði að byggjast á meðalhófi og heildstæðu mati á öllum aðstæðum máls, til dæmis mönnun og vinnuálagi.
„Sjúkraliðar og annað heilbrigðisstarfsfólk annast daglega fólk sem glímir við alvarleg veikindi og þar sem andlát geta verið hluti af þeirri þjónustu sem veitt er. Áður en gripið er til íþyngjandi rannsóknarúrræða þarf, eftir því sem lög og atvik leyfa, að liggja fyrir faglegt frummat á því sem gerðist og hvort eðlilegar skýringar geti verið á atvikinu.“
Krefjast skýrs verklags
Sjúkraliðafélagið krefst þess að „niðurstöður starfshóps um óháða málsmeðferð verði birtar og þeim fylgt eftir, að sérstök fyrirmæli um rannsókn alvarlegra atvika í heilbrigðisþjónustu verði sett og birt, - og að til staðar sé skýrt, samræmt og opinbert verklag sem tryggir réttindi sjúklinga, aðstandenda og heilbrigðisstarfsmanna.“
Þá segir í yfirlýsingunni að Sjúkraliðafélagið muni ekki sætta sig við áframhaldandi óvissu um réttarstöðu heilbrigðisstarfsmanna.
„Sjúkraliðar verða að geta gengið til ábyrgðarmikilla starfa án þess að óttast að verða persónulega gerðir ábyrgir fyrir alvarlegu atviki áður en faglegt og heildstætt mat hefur farið fram.“