Töluvert var deilt á fundi bæjarstjórnar Reykjanesbæjar á þriðjudag um hvort í gildi væri heiðursmannasamkomulag frá síðasta kjörtímabili um að laun bæjarfulltrúa skyldu fryst um óákveðinn tíma. Oddviti annars af minnihlutaflokkunum vildi meina að svo væri en forseti bæjarstjórnar vísaði því á bug og krafðist þess að skrifleg gögn yrðu lögð fram sem sönnuðu það. Fyrrnefndi bæjarfulltrúinn vildi meina að samkomulagið hefði verið munnlegs eðlis og að svo virtist sem að forseti bæjarstjórnar væri einfaldlega að segjast ekki muna eftir því.
Krafðist sannana fyrir samkomulagi um ótímabundna frystingu launa bæjarfulltrúa - „Ég er ekki að þykjast ekki að muna ekki neitt“