Forskot rauðu blokkarinnar minnkar í nýrri spá sænska ríkisútvarpsins SVT. Í útgönguspá SVT fyrr í kvöld var rauða blokkin með 51,3% atkvæða en er nú komin í 49,1%. Þar með munar aðeins einum þingmanni á rauðu og bláu blokkinni.
Aðeins 20 þúsund atkvæði skilja blokkirnar að samkvæmt spánni. Næstum átta milljónir Svía höfðu kosningarétt í dag. Búið er að telja 65% atkvæða.
Í ljósi þess hve mjótt er á munum má leiða líkur að því að úrslit muni ekki liggja fyrir í kvöld, jafnvel ekki fyrr en í næstu viku þegar öll atkvæði hafa verið talin.
„Utankjörfundaratkvæði sem voru greidd seint og atkvæði frá útlöndum verða ekki fulltalin fyrr en á miðvikudag eða fimmtudag,“ hefur SVT eftir Lars Aden Lisinski, fjölmiðlafulltrúa hjá sænsku kosningastjórninni.
Þingkosningunum í Svíþjóð lauk klukkan átta í kvöld á staðartíma þegar kjörstöðum var lokað.
„Þetta er alveg ótrúlegt,“ segir Henrik Ekengren Oscarsson, prófessor í stjórnmálafræði, á kosningavöku SVT.
„Núna eru stjórnarandstöðuflokkarnir með yfirhöndina, með einu þingsæti. Ég held að þetta muni sveiflast fram og til baka allt kvöldið og kannski jafnvel lengur, núna er þetta gríðarlega spennandi.“
Þessi spá tekur tillit til fleiri þátta en útgönguspá SVT sem kom út fyrr í kvöld og spáði sigri Rauðu blokkarinnar.
Samkvæmt nýju spánni stefnir í verstu kosningar sögunnar fyrir Sósíaldemókrata sem mælast með 27,6% atkvæða samanborið við 30,4% í síðustu kosningum. Svíþjóðardemókratar virðast líka ætla að tapa fylgi, í fyrsta sinn í þingkosningum.
Fréttin var uppfærð.