Reykjavíkurborg kynnti í dag fjárhagsáætlun fyrir næstu fimm ár. Rætt verður við borgarstjóra.
Maðurinn sem er meðákærður í máli Írisar Helgu Jónatansdóttur í umfangsmiklu umsáturseinelti játaði að hafa farið á heimili brotaþola og makað saur á hurðarhúna. Hann neitar hins vegar að hann hafi tekið þátt í meintu umsáturseinelti.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra segir viðbrögð rússneska sendiráðsins á Íslandi við ummælum hennar í pontu Alþingis í gær vera tilraun Rússa til að beina athygli frá stríðsverkum þeirra í Úkraínu
Þetta og margt fleira í hádegisfréttum á slaginu 12.