Konungur retróleikja slekkur á straumum: „Ég vissi ekki að maður gæti fengið borgað fyrir þetta“ - Vísir

Konungur retróleikja slekkur á straumum: „Ég vissi ekki að maður gæti fengið borgað fyrir þetta“ - Vísir

Konungur retróleikja slekkur á straumum: „Ég vissi ekki að maður gæti fengið borgað fyrir þetta“ - Vísir

Birkir Fannar Smárason tók snemma upp viðurnefnið Leikjarinn en áður en hann hóf að streyma á veitunni Twitch stofnaði hann YouTube-rás. Hann segir frá því að vesen sem kom upp þegar hann ætlaði að búa til aðgang á því fyrrnefnda hafi orðið til þess að viðurnefnið kom til sögunnar.

„Það var eitthvað vesen með það að tengja gamla hotmailið mitt við Twitch af því það var tengt YouTube,“ útskýrir hann og bætir við að þá hafi hann rifjað upp að þegar leikarinn og kvikmyndaframleiðandinn Tom Cruise kom til Íslands hafi hann alltaf verið kallaður Krúserinn. Nafnið leikjarinn hafi svo sprottið upp úr gríni með félögum hans og verið innblásið af þessu viðurnefni bandaríska leikarans.

Óskiljanlegt að hann hafi hætt í fótboltanum

Áður en tölvuleikir tóku yfir snerist daglegt líf og rútína Birkis í kringum fótboltaæfingar, keppnir og mót.

„Ég hafði alltaf áhuga á tölvuleikjum en fyrsti hlutinn af lífi mínu var fótbolti. Ég gerði ekki neitt annað en að vera úti í fótbolta en svo kemur tímapunktur þar sem maður tekur ákvörðun: ætlar maður að reyna að komast í landsliðið eða ætlar maður að prófa að vera unglingur eða hvað á maður eiginlega að gera,“ segir Birkir en sem barn og unglingur fluttist hann mikið á milli staða og gekk svo í Flensborgarskólann í Hafnarfirði.

Fyrstu streymin gengu eins og í sögu að sögn Birkis.

„Þá var ég eiginlega bara hættur í fótbolta sem er eiginlega óskiljanlegt af því að þetta var svo mikill partur af mér en var bara búið hjá mér. Og ég hérna, svo fluttum við,“ segir Birkir en eftir að hann flutti austur á Fáskrúðsfjörð fékk hann að leigja litla íbúð og þar kom upp sú hugmynd að prófa að streyma tölvuleikjum.

„Svo datt ég inn á YouTube-rás og þar var maður að tala fyrir framan myndavélina og spila leik en það heitir svona „let's play“, þá ertu ekki í beinni en þetta er samt mjög svipað og að vera í beinni,“ útskýrir Birkir. Hann segir hugmyndina hafa heillað sig og ákveðið í beinu framhaldi að prófa að fara í beina útsendingu.

Vann alla daga og streymdi öll kvöld

Það hafi svo gengið „eins og í sögu strax fyrstu vikuna“ en fyrsti leikurinn sem varð fyrir valinu hjá Birki heitir Faster than Light eða FTL. Árið 2011 hafi hann verið vinsæll og því hafi áhorfendum á streymið farið sífjölgandi.

Hann sérhæfði sig í því að spila leiki sem margir höfðu fallið í gleymskunnar dá.

„Þá kom einn á rásina hjá mér sem heitir Omed Dariani sem var að sjá um leikjafyrirtæki sem var að taka að sér Evercast. Var að prufa nýjar hugmyndir og hann bauð mér að vera með af því honum fannst ég vera mjög góður í að tala fyrir framan myndavélina,“ segir Birkir en Evercast er hugbúnaðarþjónusta sem gerir skapandi teymum kleift að vinna saman í rauntíma að kvikmynda-, sjónvarps- og leikjaverkefnum, jafnvel þótt þau séu hvort sínum megin í heiminum.

Þá var Birkir settur í hóp tölvuleikjastreymara víðs vegar að og fór nánast um leið á fullt við að streyma en á þessum kafla lífs síns vann hann í frystihúsinu á Flateyri. Það varð fljótt dagleg rútína að vinna frá átta á morgnana til fjögur seinni partinn en við tók bein útsending sem stóð oft yfir til um klukkan eitt á næturnar.

Hann spilaði á þessum tíma tvo leiki sitt á hvað sem voru ekki komnir út í almenna sölu.

„Þannig að þetta var smá svona „sneak peek“ í gegnum mig og aðra sem voru að streama fyrir þennan Omed Dariani í gegnum Twitch,“ segir Birkir en hann var yfirleitt með ríflega hundrað áhorfendur á hverri stundu inni á rásinni sinni.

Aldrei pælingin að græða á þessu

„Svo fór ég að streama aðra leiki sem mig langaði bara að sýna fólki úr minni æsku og þá hugsaði ég að ég gæti svo sem gert þetta bara á minni eigin rás,“ segir Birkir. Úr varð að hann sneri sér alfarið að retróleikjum, svo sem Sonic og Mario, um stund.

„Fyrsta útborgunin mín í gegnum þetta, sem var aldrei pælingin, var í kringum hundrað þúsund kall. Ég vissi ekki að maður gæti fengið borgað fyrir þetta. Þarna var hundrað og tuttugu þúsund kall kominn en það eru svo sem ekkert endilega launin sem ég fékk í frystihúsinu,“ segir Birkir.

Birkir segist mest hafa verið með ríflega sjö hundruð áhorfendur samtímis en það var snemma á ferlinum þegar hann streymdi nánast daglega.

„En ég fór samt að hugsa, bíddu nú við, þetta var nú bara svona „la la“ mánuður, þú veist, ég fór ekki live á hverju kvöldi til dæmis og ég var ekki eins lengi og ég gat verið, ég var ekki einu sinni að reyna,“ segir hann sömuleiðis en að það hafi sumir áhorfendanna gert það að vana sínum að fylgjast með Birki spila tölvuleiki á hverjum degi.

„Þá eru kannski einhverjir á sínum heimshluta að vakna og farnir að vakna með mér, taka rútínu sína með því að horfa á mig spila einhvern gamanleik.“

Seinna hafi hann spilað leiki á borð við Elder Scrolls sem tók fleiri mánuði að spila alveg í gegn. Streymið verði þá í líkingu við það að setjast niður og horfa á þátt eða kvikmynd enda sé skýr söguþráður sem spilist út í leiknum.

Tala við marga og samt engann

„Ef ég er að streama eitthvað í Sonic, þú veist jú jú, ég er kannski að gefa einhverjum æskuna svona smá til baka en svo er ég bara að spila Sonic og Sonic er bara Sonic. Ég er bara að hlaupa til hliðar,“ segir Birkir en tekur svo sem dæmi leikinn Oblivion þar sem hann segist sjálfur þekkja það að geta „horfið aðeins inn í einhvern annan heim“.

Game-tíví teymið hafði samband við Birki enda var eftirsótt að fá streymara inn sem gátu sýnt frá retróleikjum svo sem Sonic og Mario.

Á meðan streymið er í gangi er eins konar spjallgluggi uppi í horni skjásins og þar spjalla áhorfendur oft sín á milli eða senda inn spurningar.

„Stundum er mikið verið að skrifa en þá er oft fólk að tala við hvort annað, sem er gull ef fólk byrjar að kynnast þarna í gegn og það eru mjög margir sem hafa kynnst í gegnum streymið mitt sem ég hef svona frétt af aðeins seinna og það er mjög gaman.“

Birkir flutti til pabba síns og var þar í stærra herbergi en hann hafði áður haft og nýtti það til að koma sér upp flottri aðstöðu. Þar hafi hann einnig dustað rykið af retróhlutum svo sem Nintendo-tölvu en hann segir pabba sinn ekki hafa áttað sig alveg á því hver hugmyndin væri, þrátt fyrir það hafi hann ekki sett sig upp á móti henni.

„Þetta var mjög flott og allt það en svo kannski skilur pabbi þetta ekkert, ég var kannski bara: heyrðu pabbi, ég er að fara að tala við marga og samt engann klukkan átta, ekki banka eða koma inn eða neitt.“

Færði sig meira yfir til Íslands

Birkir fékk á tímapunkti að streyma fyrir GameTíví, sem er elsti íslenski sjónvarpsþátturinn sem snýst um tölvuleiki. Þá var hann með íslenskan þátt sem hét Retrohornið.

„Þannig að þá var leikjarinn kominn aðeins meira yfir á Ísland, fólk vissi alveg af mér. Rýmin mín voru eiginlega alltaf á ensku en svo fór ég að breyta þessu yfir í íslensk-ensk stream. Þannig að ef það kom Íslendingur, sem var bara að tala á íslensku í tjattinu, þá bara breytti ég yfir í íslensku og spjallaði við hann svona persónulega,“ segir Birkir.

Flest streymin hans Birkis voru á ensku þar til hann hóf að vinna meira með íslenskum streymurum en það gerðist smátt og smátt.

Árin 2012 til 2015 komu upp nokkur augnablik þar sem Birkir sagðist hefði getað hætt að vinna og snúið sér alfarið að streyminu. Hann bjó til íslenskan hóp streymana sem svipaði til þess alþjóðlega sem hann hafði sjálfur verið í árin áður.

„Ég bjó til hóp sem hét Ice-Stream og þar kom alveg hellingur af íslenskum streymurum af því að ég var svona með þeim fyrstu kannski sem voru ekki að streyma einu sinni í viku, heldur daglega,“ segir hann en vinur hans endaði á því að taka við hópnum sökum annríkis.

Þekkjast vel en hafa aldrei hist

„Þetta er bara meira orðið bara hópur af vinum og ég er til dæmis að fara að hitta nokkra af þeim loksins bara eftir nokkra daga af því að ég er búinn að vera á Djúpavogi og ég er núna á Selfossi þannig að ég get hitt þá,“ segir Birkir en hann segir marga í hópnum ekki þekkja hann sem Birki heldur frekar sem Leikjarann.

Birkir segist hafa lagt mikið upp úr því að vera með flottan bakgrunn og stillti til dæmis upp gömlum leikjatölvum, plakötum og leikjahulstrum.

Maður sem Birkir hefur spilað margoft við býr í bænum en þeir hafa aldrei áður hist augnliti til augnlitis.

„Það var frægt atriði sem við vorum í í einhverjum herleik og við vorum bara alveg að vinna. Þá ákvað ég að fljúga þyrlunni og það var slæm hugmynd og við negldum á eitthvað hús og svo sprakk allt í loft upp og við gátum bara ekki hætt að hlæja þarna. Það var svona alls konar móment á milli mín og hans en ég hef aldrei hitt hann.“

Ekki lengur með sama þol og áður

Birkir er að fara að eignast sitt annað barn í júlímánuði og er sem stendur í heimsókn hjá tengdamóður sinni. Nú segir hann vera kominn tíma á að leggja stýripinnann á hilluna en þó sé það ekki vera tilkomið vegna óska frá fjölskyldunni enda hafi hann alltaf vandað sig við að láta streitu aldrei bitna á gæðatíma með fjölskyldunni.

„Ég fann mér alltaf tíma þegar litla er sofandi og konan ætlar kannski bara að horfa á Love Island og ég lét alltaf vita nokkrum dögum áður en ég ætlaði að streyma,“ segir hann. Það hafi alls ekki verið á hverju kvöldi síðustu árin. Hann hafi ekki sama þol til þess að vaka lengi fram eftir eins og þegar vegferðin hófst árið 2011.

Í sumar verður Birkir orðinn tveggja barna faðir en hann segist sífellt finna fyrir versnandi þoli og eigi í dag mjög erfitt með að sitja við tölvuna langt fram eftir nóttu.

„Ég er orðinn pabbi og get ekki spilað svona langt fram á kvöld bara með popp og kók eins og maður gat,“ segir hann en aðspurður segir hann áhorfendatölurnar hafa mest farið upp í um sjö hundruð manns í einu.

„Það var samt mjög erfitt af því að þá voru þau sem komu alltaf á streymið mitt, sem ég svona vissi nöfnin á og var búinn að kynnast, hurfu bara í hafsjó af texta,“ segir hann.

Væri til í að gera þetta á hverjum degi

Það hafi komið fyrir að fólk á götum úti kom upp að honum og sagðist horfa reglulega á streymin.

„Ég fór í Smáralindina með vini mínum, Danna, og þá komu nokkrir að mér og sögðu bara „það var geggjað hérna þegar þú varst alltaf að hlaupa ofan af hestinum og bara hlaupa fram af fjallinu,““ segir Birkir en viðurkennir að hann hafi alltaf verið mjög hissa þegar fólk kom upp að honum.

Margir þekkja Birki einungis sem Leikjarann.

Þegar horft sé yfir ferilinn segist hann sjá eftir því að hafa ekki látið á það reyna að taka stökkið og fara af fullum krafti í það að vinna til dæmis með GameTíví-strákunum, Sverri Bergmanni og Óla Jóels, þegar þeir buðu honum það.

„Þetta var mjög gaman, ég keyrði alveg frá Djúpavogi alveg yfir í Kópavog, gisti hjá vini mínum, brunaði þarna upp í stúdíó eitthvað sjö, átta um morguninn, beint í tökur. Svo fór ég bara aftur á Djúpavog bara seinna um daginn en við smullum mjög vel og þarna hugsaði ég, vá, ég væri til í að gera bara þetta á hverjum degi þegar ég væri hjá Óla.“

Hann segir það hafa reynst smá erfitt að rifja upp árin eftir að hann byrjaði að streyma enda hafi áhorfstölurnar lækkað talsvert síðan í upphafi. Það hafi verið sum streymi þar sem enginn fylgdist með í meira en klukkustund.

Þetta er komið gott

„Það var erfitt að rifja upp byrjunina af því að þetta sprakk svo mikið upp þá. Ekki það að þetta hafi farið bara alveg niður í núll og nix, en það hafa alveg verið streymi þar sem ég hef kannski verið einn í heilan klukkutíma,“ segir hann en bætir við að þá hugsi hann frekar um þetta sem upptöku og tali stanslaust.

En nú sé hann að „kveðja Twitch og leikina í bili“ og segist hann hafa tekið ákvörðunina við leiði systkina sinna.

„Við fórum sem sagt ég, konan mín og dóttir mín, og keyrðum yfir til mömmu minnar til að fara með litlu í heimsókn til ömmu sinnar. Þá fórum við í kirkjugarðinn að leiðinu hjá bróður mínum og systur minni en þá fór ég að hugsa bara: „Já, þetta er komið gott,““ segir Birkir. 

Eftir rúm fimmtán ár hefur Birkir ákveðið að láta staðar numið. Hann segist þó ekki beint hafa læst stýripinnann ofan í kistu.

Vinnuaðstæður hafi einnig breyst nýlega og framtíðin sé óljós eins og staðan sé núna. Þau fjölskyldan sjái mögulega fram á að flytja bráðum og hann vilji ekki þurfa að setja leikina í pásu.

„Ég veit ekkert hvort ég komi til baka eftir vikur, mánuði, ár eða tvö ár en ég ákvað að setja þetta bara á hilluna,“ segir Birkir en bætir við að hann sé samt ekkert búinn að læsa stýripinnanum niður í einhverja kistu.

„Ég er alveg að kveðja en hver veit hvort ég komi til baka.“

#konungur #retróleikja #slekkur #straumum #vissi


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262897792d/konungur-retroleikja-slekkur-a-straumum-eg-er-al-veg-ad-kvedja-en-hver-veit-hvort-eg-komi-til-baka-

📰 Aðrar fréttir

Rekja hundruð dauðs­falla á ári til stærri bíla - Vísir
📅 26.06.2026 👁️ 0
Rekja hundruð dauðs­falla á ári til stærri bíla - Vísir
Banaslysum þar sem gangandi vegfarendur létu lífið fækkaði söðugt í Bandaríkjunum eins og víða annars staðar á síðari hluta síðustu aldar og í byrjun ...
Hospital probe after crocodile attack boy's records are accessed
📅 26.06.2026 👁️ 0
Hospital probe after crocodile attack boy's records are accessed
Cambridge University Hospitals refers itself to the Information Commissioner over the breach.
Írakar hóta að segja sig úr OPEC
📅 26.06.2026 👁️ 1
Írakar hóta að segja sig úr OPEC
Stjórnvöld í Írak íhuga að segja sig úr OPEC, samtökum olíuframleiðsluríkja, ef ríkinu verður ekki heimilað að auka olíuframleiðslu sína umtalsvert. Þ...
Watch: Elephant smashes through bus windscreen during attack
📅 26.06.2026 👁️ 1
Watch: Elephant smashes through bus windscreen during attack
Footage shows the moment a wild elephant attacked a bus carrying air force personnel in Sri Lanka.
Rescues and prayers a day after Venezuelan earthquakes
📅 26.06.2026 👁️ 0
Rescues and prayers a day after Venezuelan earthquakes
The BBC's Vanessa Silva reports from Caracas as the city faces the aftermath of back-to-back tremors.
Police charge boy with murder in Blaenau Gwent investigation
📅 26.06.2026 👁️ 2
Police charge boy with murder in Blaenau Gwent investigation
The boy was arrested after a female body was found during the search for a girl missing in south Wales.
Boy charged with murder after girl's body found in Blaenau Gwent
📅 26.06.2026 👁️ 0
Boy charged with murder after girl's body found in Blaenau Gwent
The body was found during the search for a 14-year-old girl, Lilly, who was reported missing.
Skutu niður á þriðja tug dróna sem stefndu á Moskvu
📅 26.06.2026 👁️ 2
Skutu niður á þriðja tug dróna sem stefndu á Moskvu
Í það minnsta 28 drónum sem stefnt var að Moskvu voru skotnir niður á um klukkutíma tímabili í kvöld. Frá þessu greinir Sergei Sobyanin, borgarstjóri ...
What we miss when we ignore male infertility
📅 26.06.2026 👁️ 2
What we miss when we ignore male infertility
How could the system better support men who have been told they might have a fertility issue?
Chris Mason: The anatomy of Prime Minister Sir Keir Starmer's downfall
📅 26.06.2026 👁️ 2
Chris Mason: The anatomy of Prime Minister Sir Keir Starmer's downfall
Sir Keir, like his predecessors Liz Truss and Boris Johnson, lost the capacity to viably govern, our political editor writes.
Slökkviliðið kallað til að gleðskap í Mosfellsbæ
📅 26.06.2026 👁️ 2
Slökkviliðið kallað til að gleðskap í Mosfellsbæ
Einn dælubíll frá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu var kallaður út rétt fyrir klukkan tíu í kvöld.Samkvæmt upplýsingum frá varðstjóra í aðgerðarstjó...
Fræddust um dag­legt líf blindra og hreyfihamlaðra - Vísir
📅 25.06.2026 👁️ 2
Fræddust um dag­legt líf blindra og hreyfihamlaðra - Vísir
Á einu námskeiðanna fræddu Sævar Helgi Bragason, af mörgum þekktur sem Stjörnu-Sævar, og Sigríður Kristjánsdóttir, náttúruvársérfræðingur hjá Veðursto...
Segir þyrlu á Akureyri löngu tímabæra - MBL.IS
📅 25.06.2026 👁️ 1
Segir þyrlu á Akureyri löngu tímabæra - MBL.IS
„Þyrla á Akureyri er öryggismál fyrir allt landið. Það er löngu tímabært að ein af þyrlum Landhelgisgæslunnar verði staðsett á Akureyrarflugvelli.“Þet...
Fimmtán vikubirgðir af kókómjólk með upp á hálendi
📅 25.06.2026 👁️ 2
Fimmtán vikubirgðir af kókómjólk með upp á hálendi
Árleg hálendisvakt Landsbjargar er hafin í tuttugasta sinn. Fyrsti hópur sjálfboðaliða er nýkominn í Landmannalaugar til að vera til taks á háannatíma...
Warning over power bank fire risk on flights as summer holidays begin
📅 25.06.2026 👁️ 2
Warning over power bank fire risk on flights as summer holidays begin
Lithium battery fires are the number one safety risk to aircraft, yet the number of devices found in hold bags has nearly doubled in a year.
Enn fækkar í hópi hamingjusamra á Íslandi - MBL.IS
📅 25.06.2026 👁️ 1
Enn fækkar í hópi hamingjusamra á Íslandi - MBL.IS
Í nýju fréttabréfi landlæknis um heilbrigðisupplýsingar, Talnabrunni, kemur fram að flestar mælingar sem embætti landlæknis hefur vaktað með reglubund...
Bjóða ferða­mönnum að gista í súrheysturni - Vísir
📅 25.06.2026 👁️ 2
Bjóða ferða­mönnum að gista í súrheysturni - Vísir
Í kvöldfréttum Sýnar var farið í Húnaþing vestra að bænum Svalbarði, sem er um tuttugu kílómetra norðan Hvammstanga. Þar hafa bændur fundið frumleg no...
Teens who hacked TfL were known to police years before cyber-attack
📅 25.06.2026 👁️ 2
Teens who hacked TfL were known to police years before cyber-attack
Owen Flowers and Thalha Jubair were convicted for their roles in the attack, which led to large costs for Transport for London.
Elon Musk skipað að bera vitni undir eið - Vísir
📅 25.06.2026 👁️ 2
Elon Musk skipað að bera vitni undir eið - Vísir
Í úrskurði á fimmtudag mælti Susan Hightower, dómari í Austin í Texas, einnig með því að Musk og stjórnmálaaðgerðanefnd hans, America PAC, yrðu krafin...
Living with parents again? How to make it work while saving to move out
📅 25.06.2026 👁️ 2
Living with parents again? How to make it work while saving to move out
Rising costs are forcing more young adults to live with their parents, here's how not to come to blows.
Hefur greitt andvirði fimm milljarða í skatta síðan hann varð konungur
📅 25.06.2026 👁️ 1
Hefur greitt andvirði fimm milljarða í skatta síðan hann varð konungur
Karl Bretakonungur hefur greitt yfir þrjátíu milljónir punda, eða rúmlega fimm milljarða íslenskra króna, í skatta frá því hann varð konungur í septem...
Drap ung systkini með eitruðum páskaeggjum – Afbrýðisöm vegna skilnaðar
📅 25.06.2026 👁️ 2
Drap ung systkini með eitruðum páskaeggjum – Afbrýðisöm vegna skilnaðar
Brasilísk kona hefur verið dæmd til 66 ára fangelsis fyrir morð á tveimur stjúpbörnum fyrrverandi eiginmanns síns. Konan eitraði páskaegg páskaegg bar...
Munu ráða fólk til að hafa samskipti við fjölmiðla - MBL.IS
📅 25.06.2026 👁️ 1
Munu ráða fólk til að hafa samskipti við fjölmiðla - MBL.IS
Reykjavíkurborg hyggst ráða „lítið teymi“ sem mun annast samskipti við fjölmiðla. Það segir Hildur Björnsdóttir, borgarstjóri í Reykjavík, í samtali v...
YouTube-stjarnan tjáir sig meira um meint kynþáttaníð Sigga Bond
📅 25.06.2026 👁️ 0
YouTube-stjarnan tjáir sig meira um meint kynþáttaníð Sigga Bond
YouTube-stjarnan tjáir sig meira um meint kynþáttaníð Sigga Bond Sigurður Bond SnorrasonMeð honum er Kristján Óli Sigurðsson Mynd: Skjáskot/Jakey Davi...
Myndband: Háhyrningar syntu við Seltjarnarnes - MBL.IS
📅 25.06.2026 👁️ 1
Myndband: Háhyrningar syntu við Seltjarnarnes - MBL.IS
Sex háhyrningar syntu við Norðurströnd á Seltjarnarnesi í nótt. Gísli Baldur Friðbjarnarson sá til þeirra og festi augnablikið á filmu.„Rétt fyrir tvö...
„Eins og að horfa á hamfaramynd um heims­endi“ - Vísir
📅 25.06.2026 👁️ 2
„Eins og að horfa á hamfaramynd um heims­endi“ - Vísir
Tveir stærðarinnar jarðskjálftar gengu yfir landið klukkan sex í gærkvöldi, miðvikudaginn 24. júní, að staðartíma en óttast er að tugir þúsunda manna ...
„Ég á vin og bróðir hans er enn fastur undir rústum byggingar“ - Vísir
📅 25.06.2026 👁️ 2
„Ég á vin og bróðir hans er enn fastur undir rústum byggingar“ - Vísir
Tveir stærðarinnar jarðskjálftar gengu yfir landið klukkan sex í gærkvöldi, miðvikudaginn 24. júní, að staðartíma en óttast er að tugir þúsunda manna ...
Framvísaði fölsku skilríki í kosningunum án athugasemda - MBL.IS
📅 25.06.2026 👁️ 1
Framvísaði fölsku skilríki í kosningunum án athugasemda - MBL.IS
Ungur tölvunarfræðingur og einn stofenda netöryggisfyrirtækis framvísaði fölsuðum rafrænum skilríkjum án athugasemda kjördeildar í Breiðagerðisskóla í...
Hjartað slær í Hafnarfirði: „Við erum búin að sprengja það al­veg utan af okkur“ - Vísir
📅 25.06.2026 👁️ 2
Hjartað slær í Hafnarfirði: „Við erum búin að sprengja það al­veg utan af okkur“ - Vísir
Þegar fréttamaður Sýnar kíkti við á þetta fyrsta hátíðarkvöld sumarsins á Hjarta Hafnarfjarðar var þegar orðið fullt á útisvæðinu. Framkvæmdastjóri Bæ...
17 ára piltur lést eftir hrottalega fyrirsát í Frakklandi – fimm ungmenni í gæsluvarðhaldi
📅 25.06.2026 👁️ 0
17 ára piltur lést eftir hrottalega fyrirsát í Frakklandi – fimm ungmenni í gæsluvarðhaldi
Mál sem hefur vakið mikla reiði í Frakklandi síðustu daga snýst um dauða 17 ára pilts, Louis að nafni, sem lést eftir að hafa orðið fyrir grimmilegri ...
Fangaverðir héldu rastamanni niður og klipptu af honum dreddana
📅 25.06.2026 👁️ 1
Fangaverðir héldu rastamanni niður og klipptu af honum dreddana
Hæstiréttur Bandaríkjanna hefur staðfest úrskurð lægri dómstóls um að rastamaður geti ekki kært starfsfólk fangelsis sem klippti af honum dredda. Vild...
Hótel Skáld opnar um helgina á Akureyri - MBL.IS
📅 25.06.2026 👁️ 1
Hótel Skáld opnar um helgina á Akureyri - MBL.IS
Hótel Skáld Akureyri verður opnað um helgina og um leið opnar nýr veitingastaður, Abba-labba-lá. Þar verður þemað fyrstu tvær helgarnar svokallað Brag...
Home Office plan to use more military bases to house asylum seekers
📅 25.06.2026 👁️ 2
Home Office plan to use more military bases to house asylum seekers
Three new sites in Oxfordshire, Suffolk, and Yorkshire could house about 3,750 asylum seekers if permission is granted.
„Miðað við þessi orð þá hef ég miklar á­hyggjur“ - Vísir
📅 25.06.2026 👁️ 2
„Miðað við þessi orð þá hef ég miklar á­hyggjur“ - Vísir
Kári Sigurðsson, formaður Sameykis, var gestur í kvöldfréttum Sýnar í kvöld, fimmtudaginn 25. júní, en hann segir andrúmsloftið hafa verið gríðarlega ...
Lambeyramáli vísað heim í hérað - MBL.IS
📅 25.06.2026 👁️ 1
Lambeyramáli vísað heim í hérað - MBL.IS
Landsréttur hefur vísað máli eigenda Dönustaða í Dölum gegn eigendum nábýlisjarðarinnar Lambeyra til baka í hérað til nýrrar dómsmeðferðar og -uppkvað...
King and Queen will not live in Buckingham Palace after renovations
📅 25.06.2026 👁️ 2
King and Queen will not live in Buckingham Palace after renovations
King Charles and Queen Camilla will continue to reside in Clarence House, Buckingham Palace says.
King Charles reveals he paid £12.9m in tax for 2024-25
📅 25.06.2026 👁️ 2
King Charles reveals he paid £12.9m in tax for 2024-25
The King becomes first monarch to publish their tax payments - with the figures putting him among the UK's top 100 taxpayers.
Kliðurinn af fuglakvakinu þagnaði - MBL.IS
📅 25.06.2026 👁️ 1
Kliðurinn af fuglakvakinu þagnaði - MBL.IS
„Þetta var stórkostleg upplifun,“ segir Skúli Jón Sigurðarson sem var 16 ára gamall þegar sólmyrkvi varð hinn 30. júní árið 1954. Morgunblaðið hafði s...
Borgin viðurkennir veruleg mistök - MBL.IS
📅 25.06.2026 👁️ 1
Borgin viðurkennir veruleg mistök - MBL.IS
„Ég tel að niðurstöðurnar séu afar þýðingarmiklar fyrir íbúa í Árskógum og Búseta og staðfesta í raun þá gagnrýni og ábendingar sem við höfum lagt fra...
Treystir sér ekki til að ganga í gegnum fjórðu réttar­höldin - Vísir
📅 25.06.2026 👁️ 2
Treystir sér ekki til að ganga í gegnum fjórðu réttar­höldin - Vísir
Hafa saksóknarar greint frá því að þeir felli málið niður í kjölfar viðræðna við ákæranda Weinsteins, hárgreiðslukonuna og leikkonuna Jessicu Mann, se...
Brýnt að setja lög um lóðaleigu – Lagaskortur býður upp á mismunun
📅 25.06.2026 👁️ 2
Brýnt að setja lög um lóðaleigu – Lagaskortur býður upp á mismunun
Ekkert bólar á frumvarpi um heildarlöggjöf um lóðaleigusamninga en tillögur voru unnar fyrir Samband íslenskra sveitarfélaga í janúar 2021. Lagaprófes...
Ekki lengur frítt í Strætó handa öllum börnum á grunn­skóla­aldri - Vísir
📅 25.06.2026 👁️ 2
Ekki lengur frítt í Strætó handa öllum börnum á grunn­skóla­aldri - Vísir
Á borgarráðsfundi í dag var samþykkt að afturkalla afgreiðslu síðustu borgarstjórnar um að fella niður gjaldtöku í strætisvögnum fyrir reykvísk börn á...
Stutt stopp hjá gjaldfrjálsum Strætó - Vísir
📅 25.06.2026 👁️ 2
Stutt stopp hjá gjaldfrjálsum Strætó - Vísir
Á borgarráðsfundi í dag var samþykkt að afturkalla afgreiðslu síðustu borgarstjórnar um að fella niður gjaldtöku í strætisvögnum fyrir reykvísk börn á...
Ný reglugerð um málefni barna með fjölþættan vanda gæti kostað sveitarfélögin milljarða
📅 25.06.2026 👁️ 2
Ný reglugerð um málefni barna með fjölþættan vanda gæti kostað sveitarfélögin milljarða
Framkvæmdastjóri Sambands íslenskra sveitarfélaga segir íslenska ríkið brjóta samkomulag við sveitarfélögin með nýrri reglugerð um ábyrgð í málefnum b...
Sonardætur í stríði við föðursystur sína - Erfðaskrá konu sem lést á tíræðisaldri dæmd ógild
📅 25.06.2026 👁️ 1
Sonardætur í stríði við föðursystur sína - Erfðaskrá konu sem lést á tíræðisaldri dæmd ógild
Landsréttur hefur staðfest úrskurð Héraðsdóms Vesturlands þar sem erfðaskrá konu sem lést árið 2024 var dæmd ógild, en talið var að konuna hefði skort...
Boðar breytingar á viðveru, ráðningum og ferðalögum
📅 25.06.2026 👁️ 2
Boðar breytingar á viðveru, ráðningum og ferðalögum
Hildur Björnsdóttir borgarstjóri skrifaði í tölvupósti til starfsfólks Ráðhússins síðdegis að frekari breytingar væru í farvatninu eftir þær sem samþy...
Keir Starmer and home secretary in row over minister's future
📅 25.06.2026 👁️ 1
Keir Starmer and home secretary in row over minister's future
Shabana Mahmood believes Mike Tapp should be sacked for writing an article but No 10 say he remains in post.
Bensínstöðvarsamningar sagðir lögbrot - MBL.IS
📅 25.06.2026 👁️ 1
Bensínstöðvarsamningar sagðir lögbrot - MBL.IS
Borgarráð samþykkti í dag að skipa samninganefnd sem á að semja við lóðarhafa bensínstöðvalóða um framtíð lóðanna. Ákvörðunin er tekin í kjölfar úttek...
UN pauses Strait of Hormuz evacuation after cargo ship attacked
📅 25.06.2026 👁️ 2
UN pauses Strait of Hormuz evacuation after cargo ship attacked
The ship was reportedly struck by an "unknown projectile" near Oman but no casualties were reported.
Stúlkan er komin í leitinar - MBL.IS
📅 25.06.2026 👁️ 1
Stúlkan er komin í leitinar - MBL.IS
Sautján ára stúlkan sem lögregla lýsti eftir á mánudag er komin í leitirnar.Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu þar se...