Kona í Vestmannaeyjum hefur verið ákærð fyrir fjölda brota sem snúast um kynferðislega áreitni gegn öðrum konum.
Í fyrsta ákærulið er konan sökuð um að hafa slegið og klipið utanklæða í rass konu á heimili brotaþola. Í sama ákærulið er hún sökuð um að hafa strokið utanklæða yfir brjóst annarrar konu og í kjölfarið gripið um þau með báðum höndum, lagt munn sinn á milli brjóstanna og blásið á þau.
Í öðrum ákærulið er hún sökuð um að hafa endurtekið klipið í rass konu.
Í þriðja ákærulið er hún sökuð um að hafa strokið yfir og klipið í brjóst konu utanklæða, strokið utanklæða yfir rass og kynfæri annarrar konu, strokið og klipið utanklæða í rass þriðju konunnar og kysst þá fjórðu á munninn.
Konurnar sjö krefjast miskabóta að fjárhæð 500 þúsund krónur hver.
Málið er rekið fyrir Héraðsdómi Suðurlands, við útibú hans að Heiðarvegi 15 í Vestmannaeyjum. Þar var málið þingfest þann 9. apríl síðastliðinn. Þinghald í málinu er lokað eins og venja er í kynferðisbrotamálum.