Kona á fimmtugsaldri var flutt á bráðamóttökuna í Fossvogi í gærkvöld eftir að hún missti meðvitund á lögreglustöðinni á Suðurnesjum. Konan var stöðvuð af tollgæslu grunuð um fíkniefnasmygl en missti meðvitund áður en lögregla gat yfirheyrt hana. Lögreglu grunaði að fíkniefnapakkning sem hún hefði innbyrt hefði rofnað, sem reyndist rétt.
Þetta staðfestir Jón Halldór Sigurðsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá Lögreglunni á Suðurnesjum við fréttastofu.
Vísir greindi fyrst frá.
Jón Halldór segir grun um að efnin sem konan hafi reynt að smygla innvortis séu kókaín. Rannsókn málsins sé enn á frumstigi og ekki liggi fyrir hversu mikið magn fíkniefna hún haft með sér.
Merki um að tilfellum fari fjölgandi
Konan er af erlendu bergi brotin og ekki búsett á Íslandi. Hún liggur enn á sjúkrahúsi en heilsast eftir atvikum vel. Jón Halldór gerir ráð fyrir því að farið verði fram á gæsluvarðhald yfir henni síðar í dag.
Hann segir þetta í annað sinn á skömmum tíma sem mál sem þetta komi upp. Fyrr í mánuðinum var portúgölsk kona á sjötugsaldri, sem reyndi að smygla fíkniefnum innvortis, færð á sjúkrahús þar sem hún gekkst undir bráðaaðgerð. Hún sé við góða heilsu í dag og hafi þegar hlotið dóm fyrir smyglið.
Jón Halldór segir málin algjörlega ótengd. Atvik sem þessi séu ekki algeng miðað við fjölda mála þar sem burðardýr komi við sögu, en það að tvær konur hafi verið svo hætt komnar með skömmu millibili sé skýrt merki um að þeim fari fjölgandi.