Lögreglu barst tilkynning um mann með bakpoka sem kom óboðinn inn í íbúð og reyndi að komast inn á baðherbergi sem eigandi íbúðarinnar var á. Hurðin var læst og hljóp maðurinn þá á brott. Hann fannst ekki þrátt fyrir leit.
Þetta kemur fram í tilkynningu úr dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.
Þá var tilkynnt um innbrot í fyrirtæki í Reykjavík og eld í gámi á endurvinnslustöð. Lítið sem ekkert tjón varð af brunanum en mögulega kviknaði út frá rafhlöðu.
Einnig var tilkynnt um umferðarslys þar sem bifreið var ekið inn í hlið annarrar. Loftpúðar sprungu út í annarri bifreiðinni og ökumenn hugðust sjálfir leita læknisaðstoðar.