Nýtt árshlutauppgjör Hveragerðisbæjar sýnir kolsvarta fjárhagsstöðu bæjarins. Lausafjárstaðan er aðeins 100 þúsund krónur og hefur bærinn þurft að reiða sig á yfirdráttarheimildir.Þetta kom fram á fundi bæjarráðs þann 20. ágúst. Það er í bókun nýs meirihluta Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar sem létu KPMG gera árshlutauppgjör fyrir tímabilið 1. janúar til 31. maí þessa árs.
Kolsvört skýrsla um fjárhag Hveragerðisbæjar – Á aðeins 100 þúsund krónur á bók