„Flugvélin okkar TF-SIF var í eftirlitsflugi á svæðinu og reyndi að kalla um borð í skipið,“ segir Magnús Pálmar Jónsson, aðgerðarstjóri hjá Landhelgisgæslunni, í samtali við fréttastofu.
Á Facebook-síðu Paul Watson-samtakanna segir að skipverjar Bandero reyni að komast nær hvalveiðiskipunum Hval 8 og 9 en hafi verið stöðvaðir af Landhelgisgæslunni. Magnús segir kallið vera einu afskiptin sem gæslan hefur haft af skipinu síðan það snéri aftur innan efnahagslögsögu Íslands.
Bandero var fyrst siglt inn fyrir efnahagslögsögu Íslands í lok júní og er hluti af Aðgerð 86 sem snýst um að koma endi á hvalveiðar á Íslandi. Fyrst um sinn var varðskipinu Þór siglt að Bandero þar sem fylgst var með ferðum Bandero.
Magnús segir að það geti verið ýmsar ástæður fyrir því að Bandero hafi ekki svarað kallinu og sé það ekkert óvenjulegt að vera í sambandi við skipverja úti á hafi.
Bandero sé ekki á ferðalagi heldur haldi sig við suðvestanvert landið og hafi hingað til ekki komist nærri hvalveiðiskipunum. Í færslu Bandero segjast þau ætla að halda sig utan tólf mílna lögsögu Íslands og óttast að fari þau inn fyrir hana muni Landhelgisgæslan hafa afskipti af þeim.