
Sú sem þetta skrifar hefur engan áhuga á að verða hundrað ára af því hún ímyndar sér að þá sé maður orðinn afar heilsulaus og fullkomlega áhugalaus um umhverfið. Eftir að hafa séð hundrað ára gamlan David Attenborough á hátíðasamkomu honum til heiðurs hefur hún skipt um skoðun. Það er greinilega hægt að vera hundrað ára og eldhress.
David Attenborough varð hundrað ára 8. maí og vitanlega var haldin afmælishátíð honum til heiðurs í Royal Albert Hall í London, BBC sýndi frá afmælishátíðinni síðastliðið föstudagskvöld og yfirskriftin var David Attenborough‘s 100 Years on Planet Earth. Sú sem þetta skrifar sat heilluð og horfði.
Afmælisbarnið sat við hlið Vilhjálms Bretaprins og stóð nokkrum sinnum upp til að taka við fagnaðarlátum gesta, sem greinilega elskuðu hann eins og við gerum öll. Hinn hundrað ára Attenborough var ótrúlega frísklegur að sjá og það var ekki eins og hann þyrfti að staulast á fætur. Hann stóð upp eins og ekkert væri. Það var heldur ekki eins og hann vissi ekki hvað væri að gerast í kringum hann. Hann vissi það mætavel.
Attenborough er einn af velgerðarmönnum þessa heims. Náttúru- og dýralífsþættir hans hafa verið sýndir um allan heim í áratugi og haft áhrif á alla sem á þá horfa. Attenborough hefur hugsanlega gert fleiri ungmenni að náttúruunnendum, dýravinum og umhverfisverndarsinnum en nokkur annar maður. Eitt áhrifamesta atriðið á afmælishátíðinni var einmitt myndband þar sem börn, 9-12 ára, þökkuðu honum fyrir að hafa verið áhrifavaldur í lífi þeirra og gerðu saman stórt afmæliskort sem endaði á sviðinu í Royal Albert Hall.
Á afmælishátíðinni var flutt tónlist úr þáttum hans, þar á meðal eftir Sigur Rós með þátttöku drengjakórs. Um leið voru sýnd myndbrot af dýrum stórum og smáum þar sem þau brugðu á leik. Glæsilegt atriði sem vakti mikla hrifningu gesta.
Eitt skemmtilegasta atriðið var myndband, gert af hugmyndaríki. Þar sást Karl konungur III á skrifstofu sinni að skrifa bréf til Attenborough sem hann setti síðan í umslag. Svo kom að því að koma hinu handskrifaða bréfi til afmælisbarnsins. Hundur konungs tók bréfið í kjaftinn og hljóp af stað með það fyrsta spölinn. Síðan tóku alls kyns dýr við. Bréfið endaði loks í kjöltu Attenborough í stúku hans í Albert Hall. Attenborough lyfti umslaginu og ljómaði af gleði.
Þetta var ótrúlegt myndband, vissulega gert með alls kyns tæknibrellum, en það var svo fallegt að maður trúði því í smástund að dýr heims hefðu raunverulega lagt saman í þeim tilgangi að koma afmæliskveðju Bretakonungs til þess stórmerkilega manns sem David Attenborough svo sannarlega er.
Undir lokin stóðu gestir upp og sungu afmælissönginn. Hátíðinni, sem var viðburðarík, lauk með myndbandi þar sem Attenborough fór með textann í hinu dásamlega lagi What a Wonderful World, sem Louis Armstrong flutti svo frábærlega á sínum tíma, meðan fallegar dýralífsmyndir voru sýndar. Þá var maður vitanlega kominn með tár í augun.
Heimurinn er betri staður vegna þess að David Attenborough er í honum.