Banvæn bylgja af svokölluðu ofurkókaíni hefur gert vart við sig víða í Evrópu. Dauðsföll í Bretlandi af þessu vinsæla vímuefni hafa náð sögulegu hámarki þar sem hreinleiki efnisins er orðinn mun meiri en áður.
Í rannsókn breska dagblaðsins Independent á Cheltenham-hestamótinu kom í ljós að tvö af hverjum þremur sýnum sem tekin voru á gestasalernum var hreinleiki kókaínsins um 85 prósent. Árið 2013 var hreinleikinn að mælast í kringum 32 prósent. Sambærileg teikn eru á lofti í Þýskalandi en í nýlegri umfjöllun þýsku sjónvarpsstöðvarinnar ZDF kom fram að enginn skortur væri á framboði og kílóverðið hafi lækkað um helming á einungis örfáum árum.
Sést einnig á Íslandi
Adam Erik Bauer, náttúrufræðingur og doktorsnemi, sagði í viðtali við Vísi í apríl að kókaínsýni á Íslandi bentu til að hér á landi væri nánast hreint kókaín í umferð:
“Og þetta er eitthvað svolítið nýtt, að við séum að sjá bara hreint kókaín í neysluvörum, sprautum og öðrum tólum, sem var hérna áður kannski meira alltaf búið að blanda með sykri eða drýgja aukna,“ sagði hann.
Þessi aukni hreinleiki þýðir að einstaklingur sem tekur inn kókaín fær í dag mun meiri vímu af skammtinum en áður. Langvarandi kókaínneysla hefur yfirleitt mikil áhrif á neytandann, þá bæði andlega og líkamlega. Stakur skammtur getur verið banvænn en mismunandi er eftir einstaklingum hversu viðkvæmir þeir eru fyrir efninu. Hætta á ofskömmtun eykst þegar efnisins er neytt samhliða áfengi. Samkvæmt verðkönnun SÁÁ frá mars 2025 var meðalverð á skammti af kókaíni 19.600 krónur.
Kaupendamarkaður
Ástæðan fyrir þessum aukna hreinleika og magni í umferð má, samkvæmt sérfræðingum, rekja til mikils uppgangs í framleiðslu í Suður-Ameríku og fjölbreyttari smyglleiðum frá Austur-Evrópu.
Peter Cain, ráðgjafi hjá Eurofins Forensic Services, fyrirtæki sem greinir fíkniefni sem lögregla leggur hald á, segir að hreinleiki hafi náð um 75% í Covid-heimsfaraldrinum og síðan farið yfir 80% á síðustu fimm árum. Í maí síðastliðnum var lagt hald á stærstu sendingu sem fundist hefur í Evrópu, alls 27 tonn, í skipi sem stöðvað var fyrir utan Kanaríeyjar. Samkvæmt upplýsingum Sky fréttastofunnar stóð líklega til að koma efnunum til meginlands Spánar með hraðbátum.
Evrópska fíkniefnastofnunin greindi einnig frá því í fyrra að meðalhreinleiki kókaíns í um helmingi aðildarríkja hefði hækkað í 66–81%.
„Þetta er kaupandamarkaður,“ sagði Cain við Independent. „Notendur fá sterkara efni og borga minna fyrir það, á sama tíma og verð hækkar á nær öllu öðru.“
Ofurkókaín
Mike Trace, fyrrum fíkniefnafulltrúi breskra stjórnvalda, segir hreinleikann mikið áhyggjuefni og hvetur hann stjórnvöld til að bregðast tafarlaust við því sem hann kallaði „heilbrigðishneyksli“, þar sem dauðsföllum heldur áfram að fjölga en dauðsföll af ofneyslu kókaíns á Englandi og í Wales náðu metfjölda árið 2024, þegar 1.279 manns létust. Þá sýna mælingar í skólpi að að neysla kókaíns í Englandi hefur aukist um fjórðung á síðustu fimm árum.
Harry Sumnall, prófessor og ráðgjafi stjórnvalda í fíkniefnamálum, lýsir efni sem er meira en 85 prósent hreint sem „ofurkókaíni“.
„Kókaínmarkaðurinn hefur aldrei verið jafn áhættusamur eða jafn skaðlegur og hann er í dag,“ sagði hann.