Kókaínneysla hér hefur sveiflast nokkuð undanfarna áratugi. Hún var vaxandi fram að hruni en féll svo, óx aftur fram undir Covid þegar síðan dró úr henni. Á síðustu árum hefur hún farið aftur vaxandi, segir Valgerður Rúnarsdóttir, framkvæmdastjóri lækninga á Vogi.
Starfsmenn Vogs finni fyrir því að neysla kókaíns sé orðin mjög almenn. Afar algengt sé að fólk á aldursbilinu 20–45 ára sem leiti sér aðstoðar á Vogi eigi við kókaínfíkn að stríða.
„Í þeim hópi sjáum við að um 40% þeirra sem koma á Vog eru með kókaínfíkn. Auðvitað líka flestir með aðra fíkn, en 40% með kókaínfíkn í þessum hópi.“
Rætt var við Valgerði í Spegli kvöldsins.