Á myndum má sjá að röðin í öryggisleitina teygir sig niður stigann á fyrstu hæðina og í gegnum brottfararsalinn að útganginum þar sem farþegarnir koma alla jafna inn.
Rakhee Bharj, sem er á leiðinni til London en býr á Íslandi, er meðal þeirra sem þurftu að bíða í röðinni. Í samtali við fréttastofu segir Rakhee að hún hafi beðið í klukkustund eftir því að komast að öryggisleitinni og var akkúrat komin fremst í röðina þegar fréttastofa náði tali af henni.
Það tók hana fjörutíu mínútur að komast að stiganum upp á aðra hæð.
„Þetta tekur venjulega hálftíma, ég er vön því að strunsa bara beint í gegn,“ segir Rakhee.
„Stemningin er smá skrýtin, fólk er annaðhvort mjög stressað eða mjög rólegt.“
Hún óttast að missa af fluginu sínu, sem á að fara klukkan 8:30 en fréttastofa talaði við hana klukkan átta. Þá átti hún enn þá eftir að fara í gegnum landamæraeftirlitið. Þegar símtalinu lauk var Rakhee að hlaupa í gegnum flugvöllinn að reyna að komast að eftirlitinu.
Hún hljómaði samt sem áður bjartsýn.
„Þetta ætti að vera í lagi, öryggisvörðurinn sagði að þar væri um fimmtán mínútna bið.“
Töluvert hefur verið fjallað um raðir á flugvellinum undanfarnar vikur en það á við um öryggisleit þeirra sem lenda á Keflavíkurflugvelli í kjölfar innleiðingar nýs kerfis í landamæraeftirliti.
Ekki bætti úr skák að áður en Rakhee fór í röðina biluðu farangursbeltin og tók um fimm til tíu mínútur að laga þau. Samkvæmt heimasíðu Isavia eiga 28 flugvélar að yfirgefa flugvöllinn á milli klukkan átta og tíu.
Maren Lind Másdóttir, framkvæmdastjóri flugvallaþróunar og innviða á Keflavíkurflugvelli, sagði í viðtali í Reykjavík að til stæði að innleiða nýjan öryggisleitarbúnað á flugvellinum. Heildarlausnin hefur verið boðin út.
Um er að ræða þróaðan búnað svo til dæmis er hægt að greina meiri vökva.