Stærsti stjórnarandstöðuflokkurinn í Póllandi, Lög og Réttlæti, er nú klofinn, eftir að einn af leiðtogum flokksins tilkynnti um nýjan þingflokk í gær. Átökin endurspegla djúpstæðan ágreining um stefnu flokksins.
„Fjörutíu þingmenn og öldungadeildarþingmenn; við höfum ákveðið að setja upp þingflokk og þetta verður okkar pólitíski vettvangur fyrir aðgerðir í framtíðinni,“ sagði Mateusz Morawiecki á blaðamannafundi í pólska þinginu í Varsjá í gær, umkringdur þessum þingmönnum sem ákváðu að slást í hópinn; það eru 40 af þeim 188 sem sátu á þingi fyrir Lög og réttlæti.
Morawiecki var forsætisráðherra Póllands þegar Lög og réttlæti voru við völd, en hann hefur að undanförnu átt í deilum við óskoraðan leiðtoga flokksins, Jarosław Kaczyński, sem stofnaði Lög og réttlæti árið 2001 með bróður sínum, Lech Kaczyński. Deilur þeirra Morawieckis og Kaczyńskis virðast vera djúpstæðar og snúast um stefnu flokksins og afstöðuna til Evrópusambandsins.
Morawiecki er hófsamari hægrimaður; fyrr á þessu ári stofnaði hann samtök sem kallast Rozwój Plus, sem er eins konar umræðuvettvangur fyrir framþróun pólsks samfélags.
Margir aðrir þingmenn og Kaczyński sjálfur hafa verið tortryggnir á þetta framtak Morawieckis og á föstudaginn síðasta var honum og um þrjátíu öðrum þingmönnum vikið úr flokknum.
Allt þetta þýðir að Lög og réttlæti er ekki lengur stærsti flokkurinn á pólska þinginu. Fylgi flokksins hefur einnig verið á niðurleið síðustu vikur og mánuði, sem skýrir mögulega þessa ákvörðun Morawieckis.
Sumir þingmenn Borgaralegs vettvangs, sem nú er við völd undir stjórn Donalds Tusks forsætisráðherra, fagna þessum klofningi; aðrir benda á að þessi þróun geti leitt til aukins samruna á hægri vængnum í aðdraganda þingkosninganna sem verða ekki síðar en í nóvember á næsta ári.