Hallur Hallsson skrifar:
Sú var tíð að eina sameign íslensku þjóðarinnar sem metin var til fjár var Íslandsklukkan sem hringdi inn lögréttu Alþingis í dönskum skugga. Íslandsklukka Halldórs Laxness tákn um sjálfstæði og menningu þjóðar. Það var brestur í Íslandsklukkunni undir danskri nýlendukúgun; monopol 1602-1787. Í Kaupmannahöfn var upp boðið Ísaland. Hörmangarar færðu bændum myglað mjöl fyrir gull hafsins þorsk, vaðmál, brennistein og grút til að lýsa upp Köben. Danir höfðu hálfshöggvið Jón Arason Hólabiskup 1550 og rænt klaustur landsins öllu gulli, silfri og dýrgripum svo og klausturkirkna og -jarða. Danir fluttu herfangið yfir hafið til Kaupmannahafnar með kaupskipum 1555-1570, skráð í dönskum skjalasöfnum. Danakonungar bræddu gullið og silfrið. Ljón Salómon í fullri stærð prýða konungshallir Kaupmannahafnar. Sjálft við lá að íslensk þjóð tortýmdist undir danskri nýlendukúgun. Danir og Bretar skiptust á beikoni og þorski með leynisamningi í Lundúnum 1901. Dönskum svínum fjölgaði í milljónir og breskir togarar stunduðu rányrkju á Íslandsmiðum. Hinn illlræmdi samningur rann út 1951. Forfeður okkar háðu hörð þorskastríð 1952-1976 til að koma Bretum út úr landhelginni. Forfeður okkar unnu fullveldis- og sjálfstæðisbaráttu 20. aldar, svo og þorskastríðin, virkjuðu fallvötnin og hita í iðrum jarðar. Ísland reis úr fátækt í hóp ríkustu þjóða veraldar. Ísland, Noregur og Sviss eru ríkustu þjóðir Evrópu, allar utan ESB. Tilviljun?
Undirgefnar dönskum og breskum nýlendukúgurum
Fimmtíu ár eru liðin frá sigri þjóðar yfir evrópskum nýlendukúgurum, Dönum og Bretum. Þjóðar-minnið spannar kynslóðir en núverandi valdhafar okkar eru nú undirgefnir dönskum og breskum nýlendukúgurum. Mette Frederiksen er rödd Íslands í “Hópi [stríðs]viljugra þjóða.“ Evrópskur skuggi er yfir Alþingi Íslendinga. Váfugl hefur hafið sig til flugs. Kristrún Frostadóttir segir: “Ég mun selja Ísland fokdýrt.“ Þorgerður Katrín segir: “Ég er ríkið.“ Ummælin spegla þær sjálfar. Hin smekklausu ummæli snerta viðkvæmustu strengi þjóðar. Kristrún og Þorgerður eru í stíðsham. Frumvarp 112/2025 veitir Ríkislögreglustjóra vald til að stefna 18+ ára körlum og konum allt til 65 ára á vígvelli Nato/ESB styrjaldar til innrásar í Rússland 2030.

Undir óheillastjórnu
Þorgerður er undir óheillastjörnu. Þann 6. febrúar 2008 tveimur dögum fyrir Hrun gaf Þorgerður þá menningarráðkona tilskipun um að gjaldeyrisivaraforði íslenskrar þjóðar; neyðarsjóður landsmanna, færi til Kaupþings húsbænda eiginmannsins Kristjáns Arasonar. Svívirðilegasta sérhagsmunagæsla Íslandssögunnar. Féð var þvegið í BIS – Bank of International Settlement, peningamaskínu Rotschilda í Basel; banka bankstera, skúrka og cartels. Enginn veit hvert féð fór. Á svipstundu hurfu 75 milljarðar fólksins sporlaust úr landi. 1.900Milljóna kúlulán, púff. “SLOPPIN,“ sagði DV 2015. Þorgerður sætir kæru 30 málsmetandi Íslendinga um landráð fyrir Bókun35. Nú hylmir DV yfir glæpi Þorgerðar sem verðskuldar að sitja bak við lás og slá. Tugir milljarðar í styrjaldarrekstur í 4000km fjarlægð, hundruð milljarðar í græna svikamyllu, 150 milljónir í wók í New York. Það er ekki hægt að bjóða fólkinu í landinu upp á svona farsa. Það er verið að sundra þjóð ... Það er verið að sundra fjölskyldum.