Starfsmenn Veitna eru að ljúka viðgerð á lagnakerfi fyrirtækisins sem olli því að heitavatnslaust varð á stórum hluta Kópavogs.
Samkvæmt upplýsingum frá Veitum verður heitu vatni hleypt á lögnina hægt og rólega svo hún hitni smám saman. Sú vinna tekur um tvær klukkustundir og það tekur nokkuð lengri tíma að ná upp þrýstingi á kerfinu, sérstaklega efst á Digranesi.
Veitur hvetja fólk til að hringja í neyðarsímann 516 6161 ef það verður vart við heitavatnsleka utanhúss. Verði fólk vart við leka innanhúss er því bent á að hafa samband við pípara.