Eins og fram hefur komið stendur baráttan um yfirráð yfir deildum þingsins. Við fórum yfir helstu sviðsmyndir í málinu í fréttaskýringu fyrir stuttu.
Stjórnskipan Bandaríkjanna gefur forsetanum gríðarmikið vald, sérstaklega þegar skautun stjórnmálanna er eins hrópandi og nú er, en löggjafinn hefur þó tól og tæki til að standa í vegi fyrir embættisverkum forsetans.
Ef svo fer, eins og skoðanakannanir gera ráð fyrir, að Demókratar nái markmiðum sínum um meirihluta í báðum deildum eru litlar líkur á að þeir geti staðið í lagasetningu. Forsetinn getur beitt neitunarvaldi, og hefur ítrekað að hann muni beita því óspart ef til komi.
Demókratar munu geta stofnað rannsóknarnefndir og fleira til að halda aftur af Trump og tefja embættisverk hans.
Svo verður þingið líka kjörinn vettvangur fyrir Demókrata að setja allra handa málefni á dagskrá fyrir forsetakosningarnar 2028.
Aldrei hafa fleiri kosið utan kjörfundar fyrir kjördag í miðtímabilskosningum (e. midterms) í Bandaríkjunum, það er þegar ekki er kosið til forseta.
Rúmlega 57 milljón atkvæði höfðu borist í gær, samanborið við 46 milljónir fyrir fjórum árum. Erfitt er að gefa sér nokkuð um hvor flokkur gæti notið góðs af því, en fleiri skráðir Demókratar hafa kosið en Repúblikanar.
Góðan daginn og velkomin á fréttavaktina á kjördegi í Bandaríkjunum.
Þorgils Jónsson heiti ég og mun fylgja ykkur í dag með helstu fréttir og fróðleik í bland. Það sem helst verður einblínt á er baráttan um yfirráð í öldungadeild þingins, þar sem Repúblikanar, samflokksmenn Donalds Trumps forseta, freista þess að halda meirihluta sínum.
Flestar spár gera þó ráð fyrir að Demókratar nái að velta þeim úr sessi í krafti megnrar óánægju almennings með stjórn efnahagsmála.
Ingibjörg Sara Guðmundsdóttir fréttamaður fór yfir sviðið í gær. Þar kemur meðal annars fram að Demókratar eru með forystu í fimm af þeim sjö ríkjum sem líklegust eru til að ríða baggamuninn í öldungadeildinni.