Forsenduákvæði kjarasamninganna brast í ágúst eftir að verðbólgan mældist 5,6 prósent. Þeir sem komu að samningunum fengu þá heimild til klukkan fjögur í dag til að segja upp kjarasamningunum.
Halla Gunnarsdóttir formaður VR fundaði meðal annars með Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra í Ráðherrabústaðnum í dag. Hún segir útspil sem forsætisráðherra hafi samþykkt um svonefnda vaxtabótaauka með verðbólguviðmiði hafi verið mikilvægur þáttur í átt að samkomulagi. Uppsagnabréf sem hún var með klárt færi í tætarann.
Fylgst verður með þróun mála í vaktinni hér að neðan. Ráð er að endurhlaða síðunni ef vaktin birtist ekki strax: