Kemur nýr í eigendahóp Morgunblaðsins
Guðmundur Kristjánsson, forstjóri útgerðarfélagsins Brim, eignast hlut í Morgunblaðinu við kaup þess á Lýsi. „Ég held við séum ekki að fara að auka okkar hlut í blaðinu,“ segir hann, en eigendur blaðsins úr röðum útgerðarmanna greiddu taprekstur þess í fyrra með 600 milljóna hlutafjáraukningu.
Guðmundur Kristjánsson, forstjóri og stærsti eigandi útgerðarfélagsins Brims, kemur nýr inn í eigendahóp Morgunblaðsins eftir kaup félagsins á Lýsi hf.
Kaup Brims á Lýsi gengu nýverið í gegn. Virði Lýsis í viðskiptunum var 30 milljarðar króna en kaupverðið var greitt með reiðufé og hlutabréfum í Brimi. Með í kaupunum fylgdu hlutir í ótengdum rekstri sem Lýsi á, meðal annars 1,27% hlutur í móðurfélagi Morgunblaðsins, Þórsmörk ehf.
„Ég hugsa að við tímum ekki að selja þetta,“ segir Guðmundur í samtali við Heimildina um hlutinn í Morgunblaðinu sem hann segir lengi hafa verið í eigu Lýsis. „Það eru margir búnir að eiga þetta blað í gegnum áratugina. Ég held við séum ekki að fara að auka okkar hlut í blaðinu.“
„Ég hugsa að við tímum ekki að selja þetta“
Þórsmörk, móðurfélag Árvakurs, útgáfufélags Morgunblaðsins, tapaði 346 milljónum króna í fyrra en eigendur greiddu upp …