Sveitarstjórn Þingeyjarsveitar hefur ráðið Katrínu Sigurjónsdóttur í starf sveitarstjóra Þingeyjarsveitar. Alls bárust 15 umsóknir um starfið en sex umsækjendur drógu umsóknir sínar til baka á meðan á ráðningarferlinu stóð.
Katrín er Borgfirðingur, fædd árið 1968, og hefur víðtæka reynslu af sveitarstjórnarmálum og stjórnun. Hún hefur áður gegnt stöðu sveitarstjóra hjá Dalvíkurbyggð og Norðurþingi auk þess að hafa verið kjörinn fulltrúi í sveitarstjórn Dalvíkurbyggðar. Þá vann hún um árabil við stjórnunar- og útflutningsstörf hjá Sölku-Fiskmiðlun hf., að því er sveitarfélagið greinir frá í tilkynningu.
Katrín er stúdent frá Samvinnuskólanum og hefur lokið námi í rekstrar- og viðskiptafræðum frá Háskólanum á Akureyri. Þá hefur hún lokið námi í markþjálfun frá Evolvia og er viðurkenndur stjórnarmaður frá Akademias. Katrín er gift Hauki Snorrasyni og eiga þau þrjú uppkomin börn, segir enn fremur.