Kaldvík, sem vill hefja sjókvíaeldi í Seyðisfirði, uppfyllir ekki lögbundnar fjárhagskröfur til að fá úthlutað leyfi til sjókvíaeldis. Það hefur barist í bökkum og væri komið í þrot ef ekki væri fyrir innspýtingu á innspýtingu ofan frá norsku móðurfélagi. Samt hafa ráðuneyti og stofnanir hér á landi veitt leyfi til fyrirtækisins og byggja það á gömlum og úreltum fjárhagsupplýsingum. Katrín Oddsdóttir, lögmaður og umhverfisverndarsinni, er viðmælandi Ólafs Arnarsonar í hlaðvarpi Eyjunnar.
Katrín Oddsdóttir: Kaldvík uppfyllir ekki lögbundnar fjárhagskröfur til að fá úthlutað leyfi til sjókvíaeldis