Karl Th. Birgisson blaðamaður er látinn. Hann lést á hjúkrunarheimilinu Hrafnistu í fyrrinótt. Hann var 62 ára.
Karl vann við fjölmiðlun og önnur ritstörf stærstan hluta starfsævinnar. Hann ritstýrði meðal annars helgarblaðinu Pressunni, tímaritinu Heimsmynd og vefnum Eyjunni. Karl stýrði útvarpsþáttunum Orð skulu standa sem sendir voru út á Rás 1 um árabil og nutu mikilla vinsælda. Síðar stýrði hann spurningaþáttunum Viti menn á sjónvarpsstöðinni Hringbraut.
Karl skrifaði og flutti pistla um þjóðfélagsmál á ýmsum vettvangi, meðal annars í Speglinum.
Karl skrifaði fjölda bóka, þar á meðal bókina Forsetakjörið um forsetakosningarnar 1996 sem hann skrifaði ásamt Einari Karli Haraldssyni og Aldrei einn á vaktinni: saga af forseta og þjóð hans um forsetakosningarnar 2012.
Flestar bækur Karls snerust um þjóðfélagsmál en ekki allar. Hann sendi frá barnabókina Kátur: ævintýri ofurhvolps ásamt Steinunni Jenný dóttur sinni og ljóðabókina Blóðsól.
Karl vann einnig við stjórnmál. Hann starfaði ungur fyrir þingflokka Bandalags jafnaðarmanna og Alþýðuflokksins, varð fyrsti upplýsingafulltrúi fjármálaráðuneytisins 23 ára og var síðar framkvæmdastjóri Samfylkingarinnar. Hann var kosningastjórastjóri fyrir bæði Alþýðuflokkinn og Samfylkinguna.
Karl lætur eftir sig þrjú uppkomin börn.