Í haust er boðið upp á fjórar sýningar á Listasafni Árnesinga. Þær heita Tengsl II, Gullni hringurinn, Satt / Ósatt og Sýning úr safneign.
Áhugi á þeirri merkingarsköpun sem verður til í tengslum manneskju við umhverfi sitt er sameiginlegur snertiflötur milli sýninganna.
„Þegar landslag er skimað berst það áhorfandanum gegnum síu persónulegrar skynjunar og sjónarhorns. Það sama er uppi á teningnum þegar við hlýðum á tungumál eða upplifum lífið í hversdagsleika sínum. Sem túlkendur höfum við áhrif á það hvernig heimurinn birtist okkur,“ stendur í fréttatilkynningu frá safninu en sýningarnar standa til 23. desember næstkomandi.
Hér má sjá vel valdar myndir frá opnuninni: