Samband Bandaríkjanna og Kanada hefur ekki verið jafn slæmt og það er í dag í langan tíma eftir að Mark Carney, forsætisráðherra Kanada, gekk frá samningaborðinu þegar ríkin voru á lokametrunum við að skrifa undir tollasamkomulag.
Í júlí hótaði Donald Trump Bandaríkjaforseti að leggja fimmtíu prósenta toll á innfluttar kanadískar vörur en gildistökunni var frestað vegna viðræðnanna.
Eftir að upp úr slitnaði setti Trump tolla á ýmsar kanadískar vörur sem fluttar eru inn til Bandaríkjanna, til að mynda áfengi, mjólkurvörur, íshokkíbúnað, föt og húsgögn. Mark Carney, forsætisráðherra Kanada, hefur sagst ætla að spegla þessa tolla yfir á Bandaríkin frá og með 8. september næstkomandi. Hann segir þetta ekki góða stöðu til að vera í og vildi meina að hann væri nokkurn veginn tilneyddur í að leggja tollana á Bandaríkin.
Engar fregnir hafa borist af því hvort ríkin ætli að hefja samningaviðræður á ný.