Francois-Philippe Champagne, fjármálaráðherra Kanada, kynnti viðbrögð við nýjustu tollum Bandaríkjastjórnar í dag.
Þeim verður svarað með 15-50 prósenta tollum á bandarískar vörur og styrkir veittir til kanadískra fyrirtækja sem verða fyrir barðinu á bandarískum tollum.
Um helgina slitnaði upp úr viðræðum Bandaríkjanna og Kanada um tollasamning. Eftir það tók gildi 50 prósenta tollur á ýmsa vöruflokka frá Kanada eins og hokkíbúnað, áfengi, mjólkurvörur, föt og smávörur á borð við kerti, hundaólar, ferðatöskur og skartgripi sem jafngildir 5,5 prósentum af útflutningi Kanada til Bandaríkjanna.
Champagne kynnti viðbrögð kanadískra stjórnvalda í dag. Það eru 15-50 prósenta tollar á ýmsa vöruflokka sem taka gildi 8. september. Þá ætla kanadísk stjórnvöld að verja 5,4 milljörðum dollara í styrki til fyrirtækja sem tollar Bandaríkjastjórnar ná til.