Jóna Árný Þórðardóttir hefur verið endurráðin bæjarstjóri í Fjarðabyggð. Bæjarstjórn samþykkti ráðningu hennar samróma í síðustu viku og ráðningarsamningur við hana var undirritaður í gær að loknum fundi bæjarráðs.
Jóna Árný hefur verið bæjarstjóri í Fjarðabyggð frá 2024. Tíu árin þar á undan var hún framkvæmdastjóri Austurbrúar og þar áður var hún meðal annars fjármálastjóri Fjarðabyggðar og vann í innri endurskoðun Alcoa Fjarðaáls.