Jón Heiðar Gunnarsson var nýkominn í sumarfrí þegar hann sat úti á pallinum með börn að leik í kringum sig. „Stuttu síðar greip ég ósjálfrátt símann og fór að fletta fréttum og samfélagsmiðlum, kíkti líka á póstinn. Tíminn leið allt í einu mjög hratt og þegar ég leit upp tók ég eftir því að þögn ríkti allt um kring, börnin höfðu líka gripið í símana sína. Fyrir örfáum mínútum höfðu þau verið að leika sér.
Jón Heiðar fattaði að hann setti tóninn: „Kannski þurfum við ekki fleiri reglur um skjátíma“