Tímabili hægfara rýrnunar jökla er lokið og þeir farnir að tapa massa jafn hratt og árin 1995 til 2011. Fjallað er um rýrnun jökla í nýju fréttabréfi verkefnisins Hörfandi jöklar.
Hrafnhildur Hannesdóttir, jöklafræðingur á Veðurstofu Íslands, sagði í Fram undan á Rás 2 að tvær ástæður skýrðu þetta helst.
„Vetrarúrkoman er í meira mæli að falla sem regn en snjór og svo erum við í fyrra með mjög hlýtt sumar og leysing sem hófst snemma í maí og hélt langt fram á haust.“
„Þetta er einsleitt mynstur. Þeir eru að hörfa á hverju ári.“
Jöklarnir sem rýrna hraðast eru þeir sem liggja lægst í landinu, svo sem Breiðamerkurjökull og Tungnajökull.