„Ég játa núna skýlaust sakargiftir er varða frelsissviptingu gagnvart brotaþola,“ sagði Ingunn Rut Sigurðardóttir, ein sex ákærðra í Reykholtsmálinu. Þriðji dagur aðalmeðferðar er í dag.
Ingunn er unnusta Andra Más Mortensen Birgissonar sem er einnig ákærður í málinu.
Til stendur að bróðir Andra gefi skýrslu eftir hádegi. Alls eru sex Íslendingar ákærðir, fimm karlar og ein kona. Þau eru ákærð fyrir að svipta mann frelsi sínu í Reykholti í apríl 2024, kúga af honum fé og beita margþættu ofbeldi.
Hún kaus að lesa yfirlýsingu en neitaði að svara spurningum eða láta bera undir sig gögn.
Hún kveðst þó ekki hafa beitt hann ofbeldi en sagðist vita af því að hann hefði verið beittur ofbeldi svo ná mætti af honum fé.
Hún neitaði einnig að hafa brotið gegn vopnalögum og að fíkniefni sem fundust við rannsókn lögreglu væru í hennar eigu eða Andra Más, unnusta hennar.
„Ég mun axla ábyrgð með þeim dómi sem ég fæ"
Unnusta Andra Más viðurkenndi að þáttur hennar í málinu hefði valdið brotaþola miklum skaða en hún mótmælti hins vegar bótaupphæðinni. Hún kannaðist við að játning hennar kæmi seint fram en undirstrikaði þó að hún væri hennar ákvörðun.
Hún sagði það ekki afsökun en ein möguleg útskýring á þætti hennar væri að hún hefði verið í neyslu fíkniefna þegar brotið átti sér stað.
Hún kvaðst hafa reynt að lifa eðlilegu lífi síðan
„Ég mun axla ábyrgð með þeim dómi sem ég fæ í málinu. Ég sé afar mikið eftir þátttöku minni,“ sagði hún.
Lestur yfirlýsingarinnar reyndist henni erfiður og grét hún mikið á meðan hún las.
Verjendur sögðust ekki vita til þess að aðrir umbjóðendur ætluðu að breyta afstöðu sinni.
Búist er við því að við lok dagsins í dag hafi allir ákærðu gefið skýrslu. Brotaþoli mun því gefa skýrslu á morgun og er búist við að það muni taka allan daginn.
Síðastur til gefa skýrslu í gær var tengdafaðir Andra Más. Í ákæru segir að það hafi verið að undirlagi tengdaföðurins að ráðist var í að rukka brotaþola um vangreidd leigugjöld sem hafi leitt af sér atburðarásina sem á eftir fylgdi. Hann er einnig sakaður um að hafa hótað og ógnað brotaþola. Hann neitaði fyrir rétti í gær.
Búist er við að aðalmeðferðin haldi áfram út þessa viku og verði mögulega áfram haldið á mánudag.